FRÉTT LAUN OG TEKJUR 03. JÚNÍ 2008

Samkvæmt vísitölu launa voru regluleg laun að meðaltali 2,8% hærri á fyrsta ársfjórðungi 2008 en í ársfjórðungnum á undan. Á sama tímabili hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 2,6% að meðaltali og laun opinberra starfsmanna um 3,1%. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 7,1%, 7,5% á almennum vinnumarkaði og um 6,1% hjá opinberum starfsmönnum.

Vísitala launa á almennum vinnumarkaði eftir starfsstétt
Frá fyrri ársfjórðungi hækkuðu laun sérfræðinga mest eða um 3,8% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst, um 2,1%. Laun sérfræðinga hækkuðu jafnframt mest frá fyrsta ársfjórðungi 2007 eða um 10,9% en laun iðnaðarmanna hækkuðu minnst, 5,7%.

Vísitala launa á almennum vinnumarkaði eftir atvinnugrein
Hækkun launa eftir atvinnugrein mældist mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J), 3,5%  frá fyrri ársfjórðungi en minnst mældist hækkun launa í iðnaði (D) og  samgöngum og flutningum (I), 2,3%.  Frá fyrra ári hækkuðu regluleg laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J) mest eða um 11,8% en minnst mældist hækkunin í iðnaði (D), 5,7%.

Kjarasamningsbundnar hækkanir á tímabilinu
Kjarasamningar flestra stéttarfélaga starfsmanna ríkisins og sveitarfélaga gerðu ráð fyrir 2%–3% hækkun launataxta frá 1. janúar 2008. Samkvæmt samkomulagi um endurskoðun kjarasamnings Kennarasambands Íslands (fyrir hönd Félags grunnskólakennara og Skólastjórafélags Íslands) og Launanefndar sveitarfélaganna hækkuðu einnig öll starfsheiti félagsmanna um einn launaflokk þann 1. mars 2008.

Kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins og Sambands íslenskra bankamanna kvað á um 2,25% hækkun launa þann 1. janúar 2008.  Kjarasamningar Samtaka atvinnulífsins og landssambanda og stærstu aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands voru hins vegar lausir um áramót. Nýir samningar sem aðilar undirrituðu þann 17. febrúar síðastliðinn komu að hluta til framkvæmda undir lok fyrsta ársfjórðungs 2008. Samkvæmt samningunum hækka launataxtar um 18.000 krónur frá 1. febrúar 2008, auk þess sem í þeim er kveðið á um sérstaka launaþróunartryggingu sem felur í sér 5,5% lágmarkshækkun launa frá janúar 2007 til gildistöku nýrra samninga.

Vísitala launa helstu launaþegahópa 2006-2008
Meðaltal Starfsmenn á almennum
2005=100 Alls vinnumarkaði Opinberir starfsmenn
Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting Breyting
frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra frá fyrri frá fyrra
  Vísitala ársfj., % ári, % Vísitala ársfj., % ári, % Vísitala ársfj., % ári, %
2006
1. ársfj. 106,8 4,2 9,7 106,7 4,1 9,3 107,2 4,5 10,6
2. ársfj. 108,7 1,7 9,4 108,2 1,4 8,9 109,8 2,4 10,6
3. ársfj. 112,0 3,0 11,0 112,1 3,6 11,4 111,6 1,7 10,1
4. ársfj. 114,0 1,8 11,2 114,3 1,9 11,5 113,2 1,4 10,3
Meðaltal 110,3 . 10,3 110,3 . 10,3 110,4 . 10,4
2007
1. ársfj. 118,6 4,1 11,0 119,1 4,2 11,7 117,4 3,7 9,5
2. ársfj. 120,2 1,4 10,6 120,9 1,5 11,7 118,6 1,1 8,1
3. ársfj. 121,8 1,3 8,8 122,6 1,5 9,4 119,9 1,0 7,4
4. ársfj. 123,6 1,5 8,4 124,8 1,8 9,2 120,8 0,8 6,7
Meðaltal 121,0 . 9,7 121,8 . 10,4 119,2 . 7,9
2008
1. ársfj. 127,0 2,8 7,1 128,1 2,6 7,5 124,6 3,1 6,1

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.