FRÉTT LAUN OG TEKJUR 31. MAÍ 2007

Vísitala launa er 118,6 stig á fyrsta ársfjórðungi 2007 og hækkaði um 4,1% frá fyrri ársfjórðungi. Á sama tímabili hækkaði vísitala launa á almennum vinnumarkaði um 4,2%. Regluleg laun skrifstofufólks hækkuðu mest eða um 5,9% en minnst hækkuðu regluleg laun verkafólks, 3,3%. Mest hækkuðu regluleg laun í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum (J) eða um 6,5% en minnst var hækkunin í iðnaði (D), 3,4%. Vísitala launa fyrir opinbera starfsmenn hækkaði um 3,7% á sama tímabili.

Frá fyrsta ársfjórðungi 2006 hefur vísitala launa hækkað um 11,0%. Á sama tímabili hækkaði vísitala launa á almennum vinnumarkaði um 11,7% og vísitala launa opinberra starfsmanna um 9,5%.

Vísitala launa, sem gefin er út ársfjórðungslega, endurspeglar þróun reglulegra launa og er birt eftir atvinnugreinum og starfsstéttum á almennum vinnumarkaði. Samhliða útgáfu vísitölu launa á almennum vinnumarkaði er gefin út vísitala launa fyrir opinbera starfsmenn og kemur sú vísitala í stað eldri birtingar launavísitölu fyrir opinbera starfsmenn og bankamenn.

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði kveða á um 2,9%-3,65% hækkun launataxta frá 1. janúar 2007. Í hækkun vísitölunnar gætir einnig áhrifa sérstaks samkomulags Sambands íslenskra bankamanna og Samtaka atvinnulífsins frá 28. ágúst sl. sem kvað á um sérstakar taxtahækkanir frá 1. janúar 2007 til samræmis við hliðstætt samkomulag Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins frá 22. júní 2006. Samkvæmt almennum kjarasamningum opinberra starfsmanna hækkuðu launataxtar þeirra um 2,9-3,0% um áramót.

Regluleg laun verkafólks hækkuðu mest frá fyrsta ársfjórðungi 2006 eða um 13,1% en regluleg laun iðnaðamanna hækkuðu minnst, 9,8%.

Mest hækkuðu regluleg laun í samgöngum og flutningum (I) eða um 13,7% frá fyrsta ársfjórðungi 2006 en minnst var hækkunin í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (G), 10,5%.


Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.