Ársfjórðungsleg vísitala heildarlauna hækkaði um 7,0% á milli fjórða ársfjórðungs 2024 og sama ársfjórðungs 2025. Á sama tímabili hækkaði vísitala launakostnaðar um 7,2%. Ársmeðaltal vísitölu heildarlauna hækkaði um 7,6% á milli áranna 2024 og 2025 og á sama tímabili hækkaði ársmeðaltal vísitölu launakostnaðar um 8,1%.
Athygli er vakin á því að undirliggjandi vinnumagn var endurskoðað fyrir árin 2024 og 2025 sem veldur því að áður birtar tölur á umræddu tímabili taka nokkrum breytingum.
Talnaefni
Vísitölur launa
Launakostnaður