Staðgreiðsluskyld launasumma í apríl 2026 hækkaði um 4,8% á milli ára. Launasumma í apríl var um 186,8 milljarðar króna. Fjöldi starfandi einstaklinga var um 209.800 og fjöldi launagreiðanda um 22.000. Greiðslur eru ekki verðlagsleiðréttar.
Athygli er vakin á því að um er að ræða bráðabirgðatölur þar sem mánaðarlegar uppfærslur á staðgreiðsluskrá ná jafnan nokkra mánuði aftur í tímann. Jafnframt eru aðferðir við framleiðslu hagtalna úr staðgreiðslugögnum í stöðugri endurskoðun og gæti bætt verklag haft minniháttar áhrif á niðurstöður.