FRÉTT LAUN OG TEKJUR 11. NÓVEMBER 2005

Kaupmáttur launa jókst um 1,4% milli ára á almennum vinnumarkaði

Regluleg laun  hækkuðu að meðaltali um 5,4% á tímabilinu frá 3. ársfjórðungi 2004 til 3. ársfjórðungs 2005 í iðnaði, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, verslun og viðgerðarþjónustu. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 4,0%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 1,4% í þessum atvinnugreinum. Launahækkun starfsstétta var á bilinu 4,5% til 6,0%. Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu almennt skv. kjarasamningum um 3% þann 1. janúar 2005.

Niðurstöður eru byggðar á launum tæplega 7 þúsund einstaklinga sem voru í úrtaki launakönnunar Hagstofunnar bæði á 3. ársfjórðungi 2004 og 3. ársfjórðungi 2005 (sk. paraðar launabreytingar).

Úrvinnsla byggir á aðferðum Kjararannsóknarnefndar og er meðalbreyting reiknuð sem meðaltal breytinga innan neðri og efri fjórðungsmarka.. Launavísitala Hagstofunnar mældi 6,1% breytingu grunnlauna á almennum vinnumarkaði fyrir sama tímabil. Niðurstöður eru frábrugðnar enda byggir launavísitala á öðrum hugtökum og aðferðum þrátt fyrir að gögn úr launakönnun Hagstofunnar séu notuð í báðum tilvikum.

Ársbreyting reglulegra launa í iðnaði, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, verslun og viðgerðarþjónustu eftir starfsstéttum
Breyting milli 3. ársfjórðungs 2004 og 2005 Meðalbreyting %
Allar stéttir 5,4
Starfsstétt
Verkafólk 6,0
Iðnaðarmenn 5,6
Þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk 5,3
Skrifstofufólk 4,6
Tæknar og sérmenntað starfsfólk 4,7
Sérfræðingar 4,5
Stjórnendur 4,9

Dreifing ársbreytinga reglulegra launa í iðnaði, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, verslun og viðgerðarþjónustu

Flestir launamenn í iðnaði, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, verslun og viðgerðarþjónustu fengu 3 % hækkun reglulegra launa á tímabilinu. Helmingur fékk allt að 4,1% hækkun og fjórðungur fékk meiri launahækkun en 11,9%.

Ársbreyting reglulegra launa eftir atvinnugreinum 
Breyting milli 3. ársfjórðungs 2004 og 2005 Meðalbreyting %
Atvinnugrein
Matvæla- og drykkjarvöruiðnaður (DA) 3,8
Annar iðnaður (D án DA) 7,7
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (F) 6,7
Verslun og ýmis viðgerðarþjónusta (G) 5,2
   

Launakönnun Hagstofunnar
Frá 1. janúar 2005 annast Hagstofan framkvæmd á launakönnun sem áður var í umsjá Kjararannsóknarnefndar. Það sem af er ári hefur ekki verið unnt að afla gagna hjá hluta þeirra fyrirtækja sem eru í úrtaki könnunarinnar. Ástæðuna má rekja til breytinga á hugbúnaði sem notaður er til launaútreikninga í fyrirtækjunum og gagnaskil byggjast á. Þetta hefur leitt til þess að úrvinnslu gagna hefur verið haldið í lágmarki árið 2005 þar sem niðurstöður hefðu ella orðið óáreiðanlegar. Þær niðurstöður sem hér birtast takmarkast við iðnað, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, verslun og viðgerðarþjónustu. Áætlað er að gagnaskil verði komin í eðlilegt horf í árslok.

Ársbreyting reglulegra launa á 1. og 2. ársfjórðungi 2005
Á vef Hagstofunnar er jafnframt að finna talnaefni sem sýnir ársbreytingu reglulegra launa í  iðnaði, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, verslun og viðgerðarþjónustu fyrir 1. og 2. ársfjórðung 2005.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.