FRÉTT LAUN OG TEKJUR 20. NÓVEMBER 2008


Laun hækkuðu um 0,3% í október
Launavísitala í október 2008 er 353,3 stig og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,8%.

Helstu hækkanir samkvæmt kjarasamningum á tímabilinu
Í hækkun vísitölunnar gætir meðal annars áhrifa samkomulags Læknafélags Íslands og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs, um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila, sem undirritað var þann 1. október síðastliðinn. Samkvæmt því hækka laun félagsmanna um 6% að meðaltali frá 1. september.

Í vísitölunni gætir einnig áhrifa samkomulags Félags prófessora við ríkisháskóla og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs um launakjör prófessora, frá 26. september síðastliðnum. Samkvæmt samkomulaginu hækkuðu laun félagsmanna um 20.300 krónur frá 1. maí og um 2,42% frá 1. september.

Launavísitala 2007-2008
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2007
Október 324,6 0,5 6,1 6,5 8,1
Nóvember 325,9 0,4 6,1 5,8 8,3
Desember 326,6 0,2 4,4 4,8 8,6
Meðaltal 319,1 . . . 9,0
2008
Janúar 330,9 1,3 8,0 7,1 6,2
Febrúar 333,5 0,8 9,7 7,9 6,8
Mars 337,6 1,2 14,2 9,2 7,8
Apríl 340,5 0,9 12,1 10,0 8,2
Maí 342,0 0,4 10,6 10,1 7,9
Júní 346,2 1,2 10,6 12,4 8,5
Júlí 348,8 0,7 10,1 11,1 9,1
Ágúst 350,4 0,5 10,2 10,4 9,1
September 352,2 0,5 7,1 8,8 9,0
Október 353,3 0,3 5,3 7,7 8,8
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.