Vinsamlega athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 24. júní 2011 9:00 frá upprunalegri útgáfu.
Launavísitala hækkaði um 1,1% frá fyrri mánuði
Launavísitala í maí 2011 er 389,9 stig og hækkaði um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,3%.
| Launavísitala 2010–2011 | |||||
| Desember 1988=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
| Vísitala launa- mánaðar | Breyting frá fyrra mánuði, % | ||||
| Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
| 2010 | |||||
| Maí | 370,1 | 0,2 | 1,6 | 2,6 | 4,0 |
| Júní | 378,3 | 2,2 | 10,5 | 6,5 | 6,1 |
| Júlí | 379,5 | 0,3 | 11,3 | 7,0 | 6,0 |
| Ágúst | 379,5 | 0,0 | 10,6 | 6,0 | 6,0 |
| September | 380,7 | 0,3 | 2,6 | 6,4 | 6,0 |
| Október | 381,8 | 0,3 | 2,4 | 6,8 | 6,0 |
| Nóvember | 382,4 | 0,2 | 3,1 | 6,8 | 4,7 |
| Desember | 383,1 | 0,2 | 2,5 | 2,6 | 4,5 |
| 2011 | |||||
| Janúar | 383,2 | 0,0 | 1,5 | 2,0 | 4,4 |
| Febrúar | 383,9 | 0,2 | 1,6 | 2,3 | 4,2 |
| Mars | 385,2 | 0,3 | 2,2 | 2,4 | 4,4 |
| Apríl | 385,6 | 0,1 | 2,5 | 2,0 | 4,4 |
| Maí | 389,9 | 1,1 | 6,4 | 4,0 | 5,3 |
| Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. | |||||
Kaupmáttur launa hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í maí 2011 er 105,9 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 1,9%.

Kjarasamningar á tímabilinu
Í kjarasamningum á milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaðir voru 5.maí 2011 var kveðið á um 50.000 króna eingreiðslu sem kom til útborgunar við samþykkt kjarasamninga. Áhrifa þessarar eingreiðslu gætir í launavísitölunni.
Talnaefni