FRÉTT LAUN OG TEKJUR 22. JÚLÍ 2011


Launavísitala hækkaði um 3,9% frá fyrri mánuði
Launavísitala í júní 2011 er 405,0 stig og hækkaði um 3,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,1%.

Launavísitala 2010–2011
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2010
Júní 378,3 2,2 10,5 6,5 6,1
Júlí 379,5 0,3 11,3 7,0 6,0
Ágúst 379,5 0,0 10,6 6,0 6,0
September 380,7 0,3 2,6 6,4 6,0
Október 381,8 0,3 2,4 6,8 6,0
Nóvember 382,4 0,2 3,1 6,8 4,7
Desember 383,1 0,2 2,5 2,6 4,5
2011
Janúar 383,2 0,0 1,5 2,0 4,4
Febrúar 383,9 0,2 1,6 2,3 4,2
Mars 385,2 0,3 2,2 2,4 4,4
Apríl 385,6 0,1 2,5 2,0 4,4
Maí 389,9 1,1 6,4 4,0 5,3
Júní 405,0 3,9 22,2 11,8 7,1
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Kaupmáttur launa hækkaði um 3,4% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í júní 2011 er 109,5 stig og hækkaði um 3,4% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,7%.

Helstu kjarasamningar á tímabilinu
Í launavísitölu júnímánaðar gætir áhrifa hækkana sem kveðið var á um í nýgerðum kjarasamningum á íslenskum vinnumarkaði.

Í kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaðir voru 5. maí 2011 er kveðið á um almenna hækkun launataxta um 4,25% þann 1. júní. Auk þess er kveðið á um sérstakt 10.000 króna álag á orlofsuppbót til útborgunar í júní 2011.

Í kjarasamningum fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna sem undirritaðir voru í lok maí og byrjun júní er kveðið á um almenna hækkun launataxta um 4,25% þann 1. júní. Auk þess er kveðið á um sérstakt 10.000 króna álag á orlofsuppbót og sérstaka 50.000 króna eingreiðslu til útborgunar í júní 2011.

Í kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna sem undirritaðir voru í lok maí og byrjun júní er kveðið á um almenna hækkun launataxta um 4,25% þann 1. júní. Auk þess er kveðið á um sérstaka 50.000 kóna eingreiðslu til útborgunar í júní 2011.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.