FRÉTT LAUN OG TEKJUR 23. ÁGÚST 2011
Launavísitala hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði
Launavísitala í júlí 2011 er 409,1 stig og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,8%.

Launavísitala 2010–2011
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2010
Júlí 379,5 0,3 11,3 7,0 6,0
Ágúst 379,5 0,0 10,6 6,0 6,0
September 380,7 0,3 2,6 6,4 6,0
Október 381,8 0,3 2,4 6,8 6,0
Nóvember 382,4 0,2 3,1 6,8 4,7
Desember 383,1 0,2 2,5 2,6 4,5
2011
Janúar 383,2 0,0 1,5 2,0 4,4
Febrúar 383,9 0,2 1,6 2,3 4,2
Mars 385,2 0,3 2,2 2,4 4,4
Apríl 385,6 0,1 2,5 2,0 4,4
Maí 389,9 1,1 6,4 4,0 5,3
Júní 405,0 3,9 22,2 11,8 7,1
Júlí 409,1 1,0 26,7 14,0 7,8
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Kaupmáttur launa hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í júlí 2011 er 110,5 stig og hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,6%.

 


Helstu kjarasamningar á tímabilinu
Í launavísitölu júlí mánaðar gætir áhrifa hækkana sem kveðið var á um í nýgerðum kjarasamningum á íslenskum vinnumarkaði.

Þá komu til framkvæmda kjarasamningar nokkurra stéttarfélaga opinberra starfsmanna við Samband íslenskra sveitarfélaga. Í þeim var kveðið á um almenna hækkun launataxta um 4,25% þann 1. júlí. Auk þess var kveðið á um sérstaka 50.000 króna eingreiðslu sem kom til útborgunar í júlí 2011.

Talnaefni


 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.