FRÉTT LAUN OG TEKJUR 24. ÁGÚST 2009


Launavísitala hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði
Launavísitala í júlí 2009 er 358,0 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 2,6%.

Launavísitala 2008-2009
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2008
Júlí 348,8 0,7 10,1 11,1 9,1
Ágúst 350,4 0,5 10,2 10,4 9,1
September 352,2 0,5 7,1 8,8 9,0
Október 353,3 0,3 5,3 7,7 8,8
Nóvember 351,3 -0,6 1,0 5,5 7,8
Desember 353,6 0,7 1,6 4,3 8,3
Meðaltal 345,0 . . . 8,1
2009
Janúar 355,7 0,6 2,7 4,0 7,5
Febrúar 355,7 0,0 5,1 3,0 6,7
Mars 356,1 0,1 2,9 2,2 5,5
Apríl 355,4 -0,2 -0,3 1,2 4,4
Maí 356,0 0,2 0,3 2,7 4,1
Júní 356,7 0,2 0,7 1,8 3,0
Júlí 358,0 0,4 3,0 1,3 2,6
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.


Kaupmáttur launa jókst um 0,2% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í júlí 2009 er 106,4 stig og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 7,8%.

Kjarasamningar í júlí
Samkvæmt samkomulagi um breytingar á kjarasamningum milli aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins sem undirritað var þann 25. júní sl. komu launabreytingar sem samkvæmt fyrri samningum áttu að taka gildi 1. mars 2009 til framkvæmda að hluta þann 1. júlí sl. Samkvæmt samkomulaginu hækkuðu almennir launataxtar um 6.750-8.750 krónur þann 1. júlí en síðari hluti hækkunarinnar kemur til framkvæmda 1. nóvember 2009.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.