FRÉTT LAUN OG TEKJUR 22. MARS 2018

Launavísitala í febrúar 2018 er 638,1 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 7,2%.

Launavísitala 2017-2018
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
  Vísitala Breyting frá fyrri mánuði, %
  síðustu 3 mánuði, % síðustu 6 mánuði, % síðustu 12 mánuði, %
 
2017          
Febrúar 595,1 0,4 3,6 4,1 5,5
Mars 597,3 0,4 3,5 3,6 5,0
Apríl 598,4 0,2 4,1 3,5 4,9
Maí 617,8 3,2 16,2 9,7 7,8
Júní 623,8 1,0 19,0 11,0 7,3
Júlí 623,9 0,0 18,2 10,9 7,2
Ágúst 625,2 0,2 4,9 10,4 7,2
September 630,0 0,8 4,0 11,2 7,4
Október 630,7 0,1 4,4 11,1 7,2
Nóvember 631,6 0,1 4,2 4,5 7,1
Desember 632,8 0,2 1,8 2,9 6,9
2018          
Janúar 635,6 0,4 3,1 3,8 7,3
Febrúar 638,1 0,4 4,2 4,2 7,2
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Kaupmáttur launa lækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði
Kaupmáttur launa í febrúar 2018 er 145,6 stig og lækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 4,8%.


Um launa- og kaupmáttarvísitölu
Launavísitala er verðvísitala sem byggist á gögnum úr launarannsókn Hagstofu Íslands og sýnir breytingar á verði vinnustundar fyrir fasta samsetningu vinnutíma. Vísitalan tekur mið af breytingum reglulegra launa sem greidd eru fyrir umsaminn vinnutíma hvort sem um er að ræða dagvinnu eða vaktavinnu. Tekið er tillit til hvers konar álags-, bónus- og kostnaðargreiðslna sem gerðar eru upp á hverju útborgunartímabili. Hvorki er tekið tillit til tilfallandi yfirvinnu né óreglulegra greiðslna enda er í lögum um launavísitölu ætlast til að breytingar á vinnutíma og samsetningu hans hafi ekki áhrif á vísitöluna.

Vísitala kaupmáttar launa byggir á launavísitölu og vísitölu neysluverðs. Almennt eykst kaupmáttur launa þegar laun hækka umfram verðlag en minnkar þegar verðbólga er meiri en launahækkanir. Hafa þarf í huga að kaupmáttur launa er annar en kaupmáttur ráðstöfunartekna. Hagstofan birtir einnig upplýsingar um kaupmátt ráðstöfunartekna þar sem tekið er tillit til heildarlauna, annarra tekna og tilfærslna, svo sem barna- og vaxtabóta, að frádregnum sköttum.

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1250 , netfang laun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.