FRÉTT LAUN OG TEKJUR 22. JANÚAR 2009


Laun hækkuðu um 0,7% í desember
Launavísitala í desember 2008 er 353,6 stig og hækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,3%.

Kaupmáttur launa hefur dregist saman um 8,2% síðustu 12 mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í desember er 109,0 stig og lækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 8,2%.


Kjarasamningar á tímabilinu
Samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga og helstu viðsemjenda, sem undirritaðir voru á tímabilinu frá miðjum nóvember fram í byrjun desember, hækkuðu laun félagsmanna um 20.300 krónur frá 1. nóvember 2008. Sambærilegir samningar voru undiritaðir á milli annarra viðsemjenda á vettvangi sveitarstjórnarstigsins.

Samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja og Samtaka atvinnulífsins sem undirritaður var þann 5. desember sl. hækkuðu laun félagsmanna um 20.500 krónur frá 1. nóvember 2008. Mánaðarlaun yfir 450.000 krónum tóku ekki breytingum samkvæmt þessu ákvæði samningsins.

Launavísitala 2007-2008
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrra mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2007
Desember 326,6 0,2 4,4 4,8 8,6
Meðaltal 319,1 . . . 9,0
2008
Janúar 330,9 1,3 8,0 7,1 6,2
Febrúar 333,5 0,8 9,7 7,9 6,8
Mars 337,6 1,2 14,2 9,2 7,8
Apríl 340,5 0,9 12,1 10,0 8,2
Maí 342,0 0,4 10,6 10,1 7,9
Júní 346,2 1,2 10,6 12,4 8,5
Júlí 348,8 0,7 10,1 11,1 9,1
Ágúst 350,4 0,5 10,2 10,4 9,1
September 352,2 0,5 7,1 8,8 9,0
Október 353,3 0,3 5,3 7,7 8,8
Nóvember 351,3 -0,6 1,0 5,5 7,8
Desember 353,6 0,7 1,6 4,3 8,3
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við meðallaun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.