Launavísitala í mars 2012 er 431,7 stig og hækkaði um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 12,1%.
Launavísitala 2011–2012 | |||||
Desember 1988=100 | Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar | ||||
Vísitala launa- mánaðar | Breyting frá fyrra mánuði, % | ||||
Síðustu 3 mánuði, % | Síðustu 6 mánuði, % | Síðustu 12 mánuði, % | |||
2011 | |||||
Mars | 385,2 | 0,3 | 2,2 | 2,4 | 4,4 |
Apríl | 385,6 | 0,1 | 2,5 | 2,0 | 4,4 |
Maí | 389,9 | 1,1 | 6,4 | 4,0 | 5,3 |
Júní | 405,0 | 3,9 | 22,2 | 11,8 | 7,1 |
Júlí | 409,1 | 1,0 | 26,7 | 14,0 | 7,8 |
Ágúst | 409,7 | 0,1 | 21,9 | 13,9 | 8,0 |
September | 412,8 | 0,8 | 7,9 | 14,8 | 8,4 |
Október | 415,7 | 0,7 | 6,6 | 16,2 | 8,9 |
Nóvember | 416,9 | 0,3 | 7,2 | 14,3 | 9,0 |
Desember | 418,2 | 0,3 | 5,3 | 6,6 | 9,2 |
2012 | |||||
Janúar | 418,2 | 0,0 | 2,4 | 4,5 | 9,1 |
Febrúar | 427,1 | 2,1 | 10,2 | 8,7 | 11,3 |
Mars | 431,7 | 1,1 | 13,6 | 9,4 | 12,1 |
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð. |
Kaupmáttur launa hefur aukist um 5,3% síðustu 12 mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í mars er 112,1 stig og hækkaði um 0,03% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 5,3%.
Kjarasamningar á tímabilinu
Í kjarasamningum fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, við stærstu stéttarfélög opinberra starfsmanna, sem undirritaðir voru í lok maí 2011, var kveðið á um hækkun launataxta um 3,5% í mars 2012.
Í sömu samningum var kveðið á um 50.000 króna eingreiðslu sem kom til hækkunar á launavísitölu í júlí 2011. Í launavísitölu marsmánaðar gætir ekki lengur áhrifa þessarar eingreiðslu. Nánar um áhrif eingreiðslna á launavísitölu má finna í minnisblaði sem fylgir fréttinni.