FRÉTT LAUN OG TEKJUR 21. FEBRÚAR 2014


Launavísitala í janúar 2014 er 468,5 stig og hækkaði um 1,0% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 6,7%.

Launavísitala 2013-2014
Desember 1988=100   Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Vísitala launa- mánaðar Breyting frá fyrri mánuði, %
Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2013
Janúar 439,2 0,3 2,2 2,6 5,0
Febrúar 449,4 2,3 11,1 7,4 5,2
Mars 455,3 1,3 17,1 8,9 5,5
Apríl 456,4 0,2 16,6 9,2 5,8
Maí 456,5 0,0 6,5 8,8 5,5
Júní 457,8 0,3 2,2 9,4 5,7
Júlí 457,5 -0,1 1,0 8,5 5,5
Ágúst 458,6 0,2 1,9 4,1 5,7
September 462,0 0,7 3,7 3,0 5,9
Október 463,1 0,2 5,0 3,0 6,0
Nóvember 464,2 0,2 5,0 3,4 6,1
Desember 463,8 -0,1 1,6 2,6 6,0
2014
Janúar 468,5 1,0 4,7 4,9 6,7
Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.

Kaupmáttur launa hækkaði um 1,7% frá fyrri mánuði
Vísitala kaupmáttar launa í janúar 2014 er 115,5 stig og hækkaði um 1,7% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,4%.

 

Kjarasamningar á tímabilinu
Í kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins og nokkurra aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands sem undirritaðir voru 21. desember 2013 var kveðið á um almenna hækkun launataxta um 2,8% þann 1. janúar 2014.

Í kjarasamningum fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og stéttarfélaga opinberra starfsmanna sem voru undirritaðir á vormánuðum 2011 var kveðið á um 38 þúsund króna eingreiðslu við lok samningstímans. Kom sú eingreiðsla til útborgunar í janúar 2014 og hafði áhrif til 0,1% hækkunar launavísitölu á ársgrundvelli.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.