FRÉTT LAUN OG TEKJUR 18. MAÍ 2015

Óleiðréttur launamunur kynjanna á Íslandi var 18,3% árið 2014 og hefur minnkað frá fyrra ári úr 19,9%. Munurinn var 19,9% á almennum vinnumarkaði en 13,2% hjá opinberum starfsmönnum, þar af var munurinn 14,1% hjá ríki og 6,7% hjá sveitarfélögum. Lítill launamunur hjá starfsmönnum sveitarfélaga helst í hendur við litla dreifingu launa í þeim hópi og hátt hlutfall kvenna, en konur eru um 75% starfsmanna sveitarfélaga. Umfjöllun um laun og launadreifingu má finna í frétt Hagstofunnar frá 31. mars 2015.

 

Þegar horft er til atvinnugreina er launamunurinn mestur í fjármála- og vátryggingastarfsemi 37,5% og minnstur í heilbrigðis- og félagsþjónustu 7,4%. Mikill launamunur í fjármála- og vátryggingastarfsemi skýrist af mikilli dreifingu launa í þeirri atvinnugrein. Launamunur minnkar nokkuð frá fyrra ári í þeim atvinnugreinum sem opinber rekstur er mestur, það er í opinberri stjórnsýslu, fræðslustarfsemi og heilbrigðis- og félagsþjónustu. Þá dregst launamunurinn einnig nokkuð saman í framleiðslu.


 
Í þessari útgáfu er launamunur skilgreindur sem óleiðréttur þar sem ekki er tekið tillit til skýringarþátta sem geta haft áhrif á laun einstaklinga. Dæmi um slíka skýringarþætti eru starf, menntun, aldur, starfsaldur og fleira. Þannig er ekki tekið tillit til þess að starfsval kynjanna er oft á tíðum ólíkt. Þá ber að athuga að greidd laun fyrir yfirvinnu og fjöldi yfirvinnustunda er inni í útreikningum en hver yfirvinnustund er að jafnaði dýrari en hver stund í dagvinnu. Því meiri yfirvinna sem er inni í laununum, því hærra verður tímakaupið og því hefur ólíkt vinnutímamynstur kynjanna áhrif á niðurstöðurnar. Karlar vinna að jafnaði meira en konur og voru vikulegar greiddar stundir fullvinnandi karla 44,1 að meðaltali árið 2014 en vikulegar greiddar stundir fullvinnandi kvenna voru 41,9. Með því að reikna óleiðréttan launamun á þennan hátt fæst ákveðin mynd af launamyndun kynjanna á vinnumarkaði sem kann að skýrast af þeim þáttum sem á undan eru taldir.

Útreikningur á óleiðréttum launamun kynjanna byggist á aðferðafræði launarannsóknar evrópsku hagstofunnar Eurostat (Structure of Earnings Survey). Við útreikning er stuðst við mánaðarlaun í októbermánuði á hverju ári. Mánaðarlaun byggja á föstum reglulegum greiðslum auk yfirvinnu. Óreglulegar greiðslur sem falla til í október eru undanskildar í út-reikningum. Reiknað er tímakaup karla annars vegar og kvenna hins vegar og mismunur þess sem hlutfall af heildartímakaupi karla er túlkað sem óleiðréttur launamunur. Í útgáfu talna fyrir 2014 voru tölur fyrir árið 2013 jafnframt endurskoðaðar.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.