FRÉTT LAUN OG TEKJUR 11. APRÍL 2008

Hagstofa Íslands hefur gefið út Hagtíðindi þar sem greint er frá niðurstöðum um lágtekjumörk og tekjudreifingu 2003–2005. Niðurstöðurnar eru fengnar úr lífskjararannsókn Hagstofunnar en hún er liður í samræmdri lífskjararannsókn Evrópusambandsins (EU-SILC).

Árin 2003–2005 voru tæplega 10% þeirra sem bjuggu á einkaheimilum fyrir neðan lágtekjumörk (at risk of poverty) eins og þau eru skilgreind í lífskjararannsókn Evrópusambandsins. Lágtekjumörkin voru 111.333 kr. í ráðstöfunartekjur á mánuði fyrir einstakling sem bjó einn árið 2005 en 233.800 kr. fyrir tvo fullorðna með tvö börn.

Hlutfall þeirra sem voru undir lágtekjumörkum árið 2005, var hæst hjá konum í aldurshópnum 16-24 ára, rúm 14% , en lægst hjá fólki í aldurshópnum 50-64 ára, rétt yfir 4%.

Hlutfallslega fleiri þeirra sem bjuggu einir eða einir með börn voru undir lágtekjumörkum en þeir sem bjuggu á annars konar heimilum. Það sama gildir um þá sem bjuggu í leiguhúsnæði samanborið við þá sem bjuggu í eigin húsnæði.

Þegar þau 20% landsmanna sem höfðu hæstar ráðstöfunartekjur, eru borin saman við þau 20% sem höfðu lægstar ráðstöfunartekjur (fimmtungastuðull) árið 2005 kemur í ljós að tekjuhæsti hópurinn var með 3,7 sinnum hærri tekjur en sá tekjulægsti. Gini-stuðullinn, sem sýnir dreifingu ráðstöfunartekna meðal allra landsmanna sem búa á einkaheimilum, var 26 árið 2005. Stuðullinn væri 100 ef sami maðurinn væri með allar tekjurnar en 0 ef allir hefðu jafnar tekjur.

Af 30 Evrópuþjóðum árið 2005 var Ísland ein þriggja þjóða sem var með lægsta lágtekjuhlutfallið. Sex þjóðir voru með lægri fimmtungastuðul en Íslendingar, ein jöfn og 22 með hærri stuðul. Loks voru sex Evrópuþjóðir með lægri Gini-stuðul en Íslendingar tvær jafnar og 21 með hærri stuðul.

Lágtekjumörk og tekjudreifing 2003-2005 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.