FRÉTT LAUN OG TEKJUR 30. APRÍL 2021

Vorskýrsla kjaratölfræðinefndar verður kynnt í dag föstudaginn 30. apríl 2021 kl. 10:00 -10:40 en í skýrslunni er fjallað um kjarasamningalotuna sem hófst árið 2019 og stendur enn yfir, þróun efnahagsmála og launa.

Kynningin verður í formi fjarfundar sem streymt verður á vef kjaratölfræðinefndar, www.ktn.is. Edda Rós Karlsdóttir, formaður nefndarinnar, kynnir skýrsluna og gerir grein fyrir helstu atriðum hennar og niðurstöðum. Þá mun Margrét K. Indriðadóttir, deildarstjóri hjá Hagstofu Íslands, fjalla um áhrif vinnutímastyttingar á laun. Meðal nýjunga í skýrslunni er samanburður á launaþróun karla og kvenna og á launaþróun innflytjenda og annarra. Tekið verður við fyrirspurnum á ktn@ktn.is á meðan á fundinum stendur. Fundarstjórn verður í höndum Aðalsteins Leifssonar ríkissáttasemjara.

Kjaratölfræðinefnd er samstarfsvettvangur um gerð og hagnýtingu tölfræðigagna um laun og efnahag en í nefndinni sitja fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, ríkis og sveitarfélaga auk fulltrúa forsætisráðuneytis, félagsmálaráðuneytis og Hagstofu Íslands. Vorskýrslan er önnur skýrsla nefndarinnar en gert er ráð fyrir framvegis komi út tvær á ári, vor og haust.

Skýrslan og tölfræðigögn eru aðgengileg á vef kjaratölfræðinefndar, www.ktn.is.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1250 , netfang laun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.