Vinsamlegast athugið að þessari fréttatilkynningu var breytt 21. febrúar 2017 13:30 frá upprunalegri útgáfu
Áætlað heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins fyrir árið 20161 var 65,9 milljarðar á grunnverði þ.e. að meðtöldum vörustyrkjum en frátöldum vörusköttum2 og jókst um 2,2% á árinu. Virði afurða búfjárræktar er talið vera 44,3 milljarðar króna og þar af vörutengdir styrkir og skattar um 10,8 milljarðar króna. Virði afurða nytjaplönturæktar eru tæpir 17,8 milljarðar og þ.a. vörutengdir styrkir og skattar 316 milljónir króna. Aðfanganotkun landbúnaðarins í heild er áætluð 44,3 milljarðar árið 2016 og jókst um 6,9% frá fyrra ári.
Aukningu í framleiðsluvirði árið 2016 má rekja til magnbreytinga. En breytingu á notkun aðfanga má rekja til 5,9% magnaukningar og 1,0% hækkunar á verði.
Framleiðsluverðmæti landbúnaðarins árið 2015 er metið 64,6 milljarða á grunnverði miðað við uppfærðar tölur og er það heildarlækkun um 2,4% frá fyrra árinu, 2014. Þessa lækkun má rekja til 0,1% magnaukningar og 2,6% lækkunar á verði.
Verðmæti afurða búfjárræktar jókst um 4,4% árið 2015 og var metið á 43,8 milljarða króna. Verðmætustu afurðirnar eru mjólk og kindakjöt, þar sem framleiðsluverðmæti jókst annars vegar um 7,2% og hins vegar 7,8%. Framleiðsluverðmæti svínakjöts lækkaði um 1,6% milli ára en alifugla hækkaði það um 9,8%. Framleiðsluverðmæti nytjaplantna, að heimanotuðu fóðri meðtöldu, reyndist tæplega 17,0 milljarðar eða 18,0% lægra en fyrra ár. Verðmæti afurða kornræktar lækkaði um 46,1% frá árinu á undan, kartaflna um 1,9% og fóðurjurta um 22,2%. Framleiðsluverðmæti garðyrkjuafurða jókst um 2,6% .
Aðfanganotkun landbúnaðarins lækkaði um 16,3% á árinu 2015, í 41,4 milljarða milli ára og munar þar helst um 14,8% magnbreytingu. Í samræmi við umfang búfjárræktarinnar í íslenskum landbúnaði er fóðurnotkun veigamesti liður í aðföngunum með upp undir helmings hlut. Líkt og í framleiðsluverðmæti nytjaplantna er hér verðmæti heimaræktaðs fóðurs meðtalið.
Afkoma landbúnaðarins 2014-2016 | ||||
Á verðlagi hvers árs, millj.kr. | 2014 | 2015 | 2016* | %milli áranna 2015/2016 |
Virði afurða nytjaplönturæktar | 20.753 | 17.023 | 17.807 | 4,6 |
Þ.a. vörutengdir styrkir og skattar af nytjaplönturækt | 269 | 295 | 316 | 7 |
Virði afurða búfjárræktar | 41.960 | 43.807 | 44.343 | 1,2 |
Þ.a. vörutengdir styrkir og skattarf af búfjárrækt | 10.098 | 10.336 | 10.766 | 4,2 |
Tekjur af landbúnaðarþjónustu | 287 | 316 | 329 | 4,1 |
Tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi | 3.190 | 3.425 | 3.513 | 2,6 |
Heildarframleiðsluvirði | 66.189 | 64.571 | 65.992 | 2,2 |
Kostnaður við aðfanganotkun | 49.507 | 41.425 | 44.286 | 6,9 |
Vergt vinnsluvirði | 16.682 | 23.146 | 21.706 | -6,2 |
Afskriftir fastafjármuna | 5.251 | 5.468 | 4.526 | -17,2 |
Hreint vinnsluvirði | 11.431 | 17.678 | 17.181 | -2,8 |
Aðrir framleiðslustyrkir | 181 | 195 | 205 | 5,3 |
Aðrir framleiðsluskattar | ... | ... | ... | ... |
Þáttatekjur | 11.612 | 17.873 | 17386 | -2,7 |
Launakostnaður | 5.022 | 4.855 | 5.310 | 9,4 |
Rekstrarhagnaður/einyrkjatekjur | 6.590 | 13.018 | 12.076 | -7,2 |
Leiga og önnur leigugjöld af fasteignum sem ber að greiða (jarðaleiga) | 159 | 154 | 154 | ... |
Fjármagnsgjöld | 3.502 | 2.715 | 2.715 | ... |
Fjáreignatekjur | 98 | 76 | 76 | ... |
*Áætlað
2Vörutengdir styrkir eru s.s. beingreiðslur.
1Áætlun ársins 2016 byggist á lokaniðurstöðum ársins 2015 og þeim upplýsingum sem fyrirliggjandi eru um magn-og verðbreytingar árið 2016.