Kjötframleiðsla í apríl 2025 var samtals 1.781 tonn, 8% minni en í apríl á síðasta ári. Framleiðsla á nautakjöti minnkaði um 17%, framleiðsla á svínakjöti minnkaði um 6% og alifuglakjöti um 2%. Þá var útungun alifugla til kjötframleiðslu 5% meiri en í apríl 2024.