FRÉTT KOSNINGAR 18. APRÍL 2007

Sveitarstjórnir semja kjörskrár eftir kjörskrárstofnum sem Þjóðskrá lætur þeim í té. Á kjörskrárstofnum vegna alþingiskosninganna 12. maí 2007 eru 221.368 kjósendur, 110.969 konur og 110.399 karlar. Konur eru  því 570 eða 0,5% fleiri en karlar. Við alþingiskosningarnar 10. maí 2003 voru 211.304 kjósendur á kjörskrá og nemur fjölgunin 10.064 eða 4,8%.

Í endanlegri tölu kjósenda á kjörskrá, sem birt verður í skýrslu Hagstofunnar um kosningarnar, verður tekið tillit til tölu látinna og þeirra sem fá nýtt ríkisfang eftir að kjörskrárstofnar voru unnir, svo og breytinga sem verða á kjörskrá vegna leiðréttinga.

Kjósendur með lögheimili erlendis eru 8.793 eða 4,0% kjósendatölunnar og hefur þeim fjölgað um 65 frá síðustu alþingiskosningum eða um 0,7%. Kjósendum með lögheimili hér á landi fjölgar um 9.999 eða 4,9%. Þeir sem vegna aldurs fá nú að kjósa í fyrsta sinn til Alþingis eru 17.132 eða 7,7% af kjósendatölunni.

Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis nr. 24/2000 á hver íslenskur ríkisborgari sem náð hefur 18 ára aldri á kjördag og á lögheimili hér á landi, kosningarrétt við Alþingiskosningar.  Íslenskur ríkisborgari, sem náð hefur 18 ára aldri og átt hefur lögheimili hér á landi, á og kosningarrétt í átta ár frá því hann flutti lögheimili af landinu, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. Slíkur ríkisborgari á og kosningarrétt hér á landi eftir þann tíma, enda sé um það sótt. Ákvörðun um að einhver sé þannig tekinn á kjörskrá gildir í fjögur ár frá 1. desember næstum eftir að umsókn var lögð fram. Nú eru á kjörskrárstofnum 227 kjósendur sem svo stendur á um.

Samkvæmt lögunum er hver maður tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann átti lögheimili samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár fimm vikum fyrir kjördag, sem nú var 7. apríl.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.