FRÉTT IÐNAÐUR 12. APRÍL 2011

Kerfisvilla hefur komið í ljós við innlestur á launagögnum í vísitölu byggingarkostnaðar, sem haft hefur í för með sér uppsafnað vanmat í vísitölunni frá mars 2010. Gildi vísitölu byggingarkostnaðar er í dag metið rúmum 4% lægra en það ætti að vera.

Hagstofan vinnur nú  að endurútreikningi og verða niðurstöður birtar 20. apríl næstkomandi samhliða útgáfu vísitölu byggingarkostnaðar með gildistíma í maí 2011. Hækkun vegna áhrifa leiðréttingarinnar mun að fullu koma fram í vísitölugildi með gildistíma í maí 2011.

Hagstofan mun þá birta leiðrétta tímaröð vísitalna frá janúar 2010 til og með apríl 2011 til þess að auðvelda notendum endurútreikning uppgjörs vegna verðtryggðra samninga. Leiðrétt tímaröð mun enn fremur nýtast til greiningar á þróun byggingarkostnaðar á tímabilinu.

Hagstofan biður notendur afsökunar á óþægindum sem af þessu kunna að leiða og mun grípa til ráðstafana til að koma í veg fyrir að slík mistök endurtaki sig.

Sjá hér nánari greinargerð í minnisblaði.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.