FRÉTT IÐNAÐUR 20. OKTÓBER 2004

Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan október, er 303,9 stig (júní 1987=100) og hækkar um 0,53% frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyrir nóvember. Samsvarandi vísitala miðuð við eldri grunn (desember 1982=100) er 972 stig.
       Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 5,6%.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.