FRÉTT IÐNAÐUR 21. APRÍL 2010

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan apríl 2010 er 100,9 stig (desember 2009=100) sem er lækkun um 0,2% frá fyrri mánuði. Vísitalan gildir í maí 2010.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 6,7%.

Nú í apríl er síðasta birting á sundurliðuðu talnaefni samkvæmt eldri framsetningu og framreikningi á vísitölu iðnaðarhúsnæðis. Frá og með maí 2010 verður uppfærslu á þessum töflum hætt.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.