Vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð um miðjan desember 2019, er 146,7 stig (desember 2009=100) og hækkar um 0,2% frá fyrri mánuði. Innlent efni hækkaði um 0,6% (áhrif á vísitölu 0,2%). Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 2,3%. Vísitalan gildir í janúar 2020.

Þessi frétt um vísitölu byggingarkostnaðar er síðasta reglubundna fréttin um vísitöluna. Frá og með janúar 2020 verður talnaefni uppfært án reglubundinna frétta. Þetta er í samræmi við birtingaráætlun Hagstofu Íslands fyrir árið 2020. Á útgáfudegi verður almenn tilkynning birt á vef Hagstofu Íslands um að talnaefni hafi verið uppfært og póstur sendur til áskrifenda.

Breytingar vísitölu byggingarkostnaðar 2018–2019
  Gildistími janúar 2010=100 Útreikn.tími des. 2009=100 Breytingar í hverjum mánuði, % Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar %
Síðasta mánuð Síðustu 3 mánuði Síðustu 6 mánuði Síðustu 12 mánuði
2018
Desember141,6 142,1 0,3 4,1 5,6 4,2 4,1
2019
Janúar142,1 142,1 0,0 -0,4 3,2 3,1 3,7
Febrúar142,1 142,4 0,2 3,0 2,2 3,6 4,0
Mars142,4 142,4 0,0 -0,2 0,8 3,2 3,9
Apríl142,4 142,7 0,2 2,4 1,7 2,4 3,9
Mai142,7 145,8 2,2 29,7 9,9 6,0 4,8
Júní145,8 146,1 0,2 2,3 10,8 5,7 4,9
Júlí146,1 146,4 0,2 2,4 10,7 6,1 4,6
Ágúst146,4 146,3 -0,1 -0,7 1,3 5,5 4,6
September146,3 146,3 0,0 0,5 0,7 5,6 4,4
Október146,3 146,3 0,0 -0,3 -0,2 5,2 3,8
Nóvember146,3 146,4 0,1 1,3 0,5 0,9 3,4
Desember146,4 146,7 0,2 2,3 1,1 0,9 3,3
2020
Janúar146,7

Talnaefni