FRÉTT IÐNAÐUR 20. DESEMBER 2011

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan desember 2011 er 112,3 stig (desember 2009=100) sem er hækkun um 0,6% frá fyrri mánuði. Verð á innlendu efni hækkaði um 0,8% (áhrif á vísitölu 0,3%) en verð á innfluttu efni hækkaði um 0,2% (0,1%). Vinnuliðir hækkuðu um 0,7% (0,2%), sem að stórum hluta skýrist af samningsbundnum desemberuppbótum. Þá hækkaði liðurinn vélar, flutningur og orkunotkun um 0,8%. Vísitalan gildir í janúar 2012.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 11,4%.

Breytingar vísitölu byggingarkostnaðar 2010-2011      
Vísitala  Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar
Gildistími janúar 2010=100 Útreikn- tími des. 2009=100 Breytingar í hverjum mánuði, %
Síðasta mánuð, % Síðustu 3 mánuði, % Síðustu 6 mánuði, % Síðustu 12 mánuði, %
 
2011
Janúar 100,8 101,4 0,6 7,9 2,1 -1,5 0,3
Febrúar 101,4 101,6 0,1 1,6 2,9 -1,8 0,8
Mars 101,6 102,5 0,9 11,7 7,0 -0,9 1,4
Apríl 102,5 106,7 4,1 61,6 22,4 11,8 5,7
Maí 106,7 107,4 0,7 8,5 25,1 13,4 5,5
Júní 107,4 109,9 2,3 31,5 32,1 18,9 7,6
Júlí 109,9 110,8 0,8 10,1 16,2 19,3 8,4
Ágúst 110,8 110,5 -0,2 -2,7 12,1 18,4 7,8
September 110,5 111,3 0,7 8,8 5,2 17,9 8,1
Október 111,3 111,4 0,1 1,1 2,3 9,0 10,4
Nóvember 111,4 111,6 0,2 2,2 4,0 8,0 10,7
Desember 111,6 112,3 0,6 7,4 3,5 4,4 11,4
2012
Janúar 112,3 . . . . . .

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.