Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, fyrir utan lyfjaframleiðslu, var 4.594 milljarðar á tímabilinu frá mars 2018 til febrúar 2019, sem er 7,4% hækkun miðað við næstu 12 mánuði þar á undan. Á tímabilinu janúar-febrúar 2019 var veltan 673 milljarðar, eða 8,5% hærri en sömu mánuði árið áður. Á þessu tímabili jókst velta mest í heild- og umboðssölu með fisk (39,6%) og í sjávarútvegi (34,7%). Velta lækkaði meðal annars í flutningum og geymslu (-9,7%); sölu og viðhaldi á vélknúnum ökutækjum (-7,8%); bílaleigu (-4,7%).

Virðisaukaskattsvelta (milljarðar króna)
  jan.-feb. 2018 jan.-feb. 2019 Breyting, % mars 2017-feb. 2018 mars 218-feb. 2019 Breyting, %
Alls án lyfjaframleiðslu¹ 620 673 8,5 4.276 4.594 7,4
Landbúnaður og skógrækt² 2 2 ... 50 51 1,8
A-03/C-102 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða 50 67 34,7 342 375 9,9
C-24 Framleiðsla málma 41 43 5,5 228 256 12,6
C Framleiðsla; án fiskvinnslu, lyfjaframleiðslu og framleiðslu málma 59 62 5,9 411 436 6,0
D/E Veitustarfsemi 30 32 5,9 172 189 9,9
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr j 43 47 9,0 329 361 9,7
G-45 Sala og viðhald vélknúinna ökutækja 24 22 -7,8 176 161 -8,6
G-46171/G-46172/G-46381 Heild- og umboðsverslun með fisk 31 44 39,6 202 240 18,6
G-4671 Olíuverslun 16 17 10,8 124 130 4,8
G-46 Önnur heild- og umboðsverslun 53 58 9,8 348 373 7,1
G-47 Smásala 66 70 6,5 458 481 5,0
H Flutningar og geymsla 65 59 -9,7 469 488 3,9
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 24 24 -0,6 192 197 2,6
J Upplýsingar og fjarskipti 32 35 9,2 200 227 13,2
N-7711 Leiga á bifreiðum og léttum vélknúnum ökutækjum 6 6 -4,7 52 51 -1,0
N-79 Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur 13 15 12,2 103 114 10,9
Erlend fyrirtæki sem selja rafræna þjónustu til einstaklinga á Íslandi 1 2 26,6 7 9 20,4
Aðrar atvinnugreinar 63 67 6,8 412 456 10,5
¹ Virðisaukaskattskyld velta er birt tímabundið án veltu í lyfjaframleiðslu þar sem verið er að yfirfara og sannreyna gögn í þeirri atvinnugrein.
² Margir bændur skila virðisaukaskattskýrlsu hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar.

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 19. mars sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 807,6 milljarðar króna í nóvember og desember 2018, sem var 5,7% hækkun frá sömu mánuðum árið 2017. Nú hafa nýrri tölur borist og veltan, á þessu tímabili, er talin vera 812,2 milljarðar, sem er 6,3% hækkun milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar