FRÉTT FYRIRTÆKI 15. JÚNÍ 2022

Miklar breytingar hafa orðið á veltu margra atvinnugreina frá ársbyrjun 2019 til ársbyrjunar 2022 samkvæmt virðisaukaskattskýrslum.

Frá og með mars 2020 var mikið um lokanir og takmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins og því er athyglisvert að bera saman veltu í mars-apríl 2022 við sama tímabil 2019, þ.e. fyrir faraldurinn. Á þessu tímabili hefur velta aukist mikið í flestum útflutningsgreinum. Aukningin var mest í framleiðslu málma og í olíverslun, enda hefur heimsmarkaðsverð á áli og olíu hækkað mikið á þessu tímabili.

Gengisvísitala hækkaði um 6% frá mars-apríl 2019 til sömu mánaða 2022. Vísitala neysluverðs hækkaði um 14% á sama tímabili.

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 25. apríl sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 797,4 milljarðar króna í janúar-febrúar 2022 sem var 25,28% hækkun frá sama tímabili árið 2021.

Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 799,5 milljarðar sem er 25,61% hækkun á milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.