Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, sem var birt 14. september sl., hefur verið leiðrétt eftir að villa fannst í grunngögnum. Villan var í liðnum „03/10.2 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða“ á virðisaukaskattstímabili maí-júní 2016. Þessi liður var 82 milljarðar króna en verður 60 milljarðar eftir leiðréttingu. Heildarvelta virðisaukaskattsskyldrar starfsemi á tímabilinu maí-júní 2016 telst því 750 milljarðar, í stað 772 milljarðar áður.
Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi í maí og júní 2016 nam 750 milljörðum króna, sem er 7% aukning miðað við sama tímabil árið 2015. Á síðustu 12 mánuðum er aukningin 7% samanborið við 12 mánuði þar áður.
Um síðustu áramót tóku í gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt , 50/1988, þ.a. nú eru nokkrar atvinnugreinar virðisaukaskattsskyldar sem áður voru undanþegnar. Þar ber helst að nefna farþegaflutninga aðra en áætlunarflutninga (undir bálk H) og þjónustu ferðaskrifstofa (undir bálki N). Þetta er að hluta til skýringin á mikilli aukningu á virðisaukaskattsskyldri veltu í þessum greinum, en einnig hafa umsvif þessara atvinnugreina aukist mikið undanfarin ár.
Um áramótin tóku einnig í gildi breytingar á vörugjöldum, m.a. hækkaði vörugjald á áfengi um leið og áfengi var fært úr efra þrepi virðisaukaskatts í neðra. Þar sem hér er birt velta án virðisaukaskatts þá hafði flutningur milli þrepa enginn áhrif á tölur. Hins vegar leggst virðisaukaskattur ofan á vörugjald og því veldur hækkun vörugjalds hækkun á virðisaukaskattsskyldri veltu. Hækkanir á vörugjaldi á áfengi valda því veltuaukningu í liðunum „Heild- og smásöluverslun“ og „Rekstur gististaða og veitingarekstur“.
Virðisaukaskattsvelta | ||||||
maí-júní | júlí-júní | |||||
2015 | 2016 | % | 2014-2015 | 2015-2016 | % | |
Alls | 699.223 | 750.451 | 7% | 3.698.745 | 3.939.310 | 7% |
01/02 Landbúnaður og skógrækt¹ | 15.315 | 16.569 | 8% | 45.795 | 50.011 | 9% |
03/10.2 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða | 65.958 | 60.322 | -9% | 388.411 | 373.955 | -4% |
C Framleiðsla, án 10.2, fiskvinnslu | 134.091 | 119.729 | -11% | 724.379 | 658.134 | -9% |
D/E Veitustarfsemi | 28.287 | 26.255 | -7% | 169.470 | 164.533 | -3% |
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu | 37.098 | 51.678 | 39% | 180.116 | 232.031 | 29% |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 217.687 | 233.018 | 7% | 1.181.293 | 1.252.368 | 6% |
H Flutningar og geymsla² | 71.218 | 80.584 | 13% | 352.435 | 409.627 | 16% |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 25.408 | 30.976 | 22% | 122.016 | 148.257 | 22% |
J Upplýsingar og fjarskipti | 29.235 | 32.738 | 12% | 170.179 | 189.036 | 11% |
L Fasteignaviðskipti og fasteignaleiga | 10.555 | 12.435 | 18% | 61.689 | 71.941 | 17% |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 23.902 | 25.610 | 7% | 132.194 | 151.814 | 15% |
N Önnur leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta² | 18.091 | 35.326 | 95% | 81.048 | 128.882 | 59% |
Aðrir bálkar | 22.379 | 25.212 | 13% | 89.719 | 108.721 | 21% |
¹Flestir bændur skila virðisaukaskatti hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar. | ||||||
²Í ársbyrjun 2016 tóku gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt, m.a. varð hluti farþegaflutninga (bálkur H) og þjónusta ferðaskrifstofa (bálkur N) virðisaukaskattsskyldur. |