FRÉTT FYRIRTÆKI 11. JÚLÍ 2016

Velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi í mars og apríl 2016 nam 635 milljörðum króna, sem er 5% aukning miðað við sama tímabil árið 2015. Á síðustu 12 mánuðum er aukningin 8% samanborið við 12 mánuði þar áður.

Um síðustu áramót tóku gildi breytingar á lögum um virðisaukaskatt, 50/1988, þ.a. nú eru nokkrar atvinnugreinar virðisaukaskattsskyldar sem áður voru undanþegnar. Þar ber helst að nefna farþegaflutninga aðra en áætlunarflutninga (undir bálki H) og þjónustu ferðaskrifstofa (undir bálki N). Þetta er að hluta til skýringin á mikilli aukningu á virðisaukaskattsskyldri veltu í þessum greinum, en einnig hafa umsvif þessara atvinnugreina aukist mikið undanfarin ár.

Um áramótin tóku einnig gildi breytingar á vörugjöldum, m.a. hækkaði vörugjald á áfengi um leið og áfengi var fært úr efra þrepi virðisaukaskatts í neðra. Þar sem hér er birt velta án virðisaukaskatts þá hafði flutningur milli þrepa engin áhrif á tölur. Hins vegar leggst virðisaukaskattur ofan á vörugjald og því veldur hækkun vörugjalds hækkun á virðisaukaskattsskyldri veltu. Hækkanir á vörugjaldi á áfengi valda því veltuaukningu í liðunum „Heild- og smásöluverslun“ og „Rekstur gististaða og veitingarekstur“.

Virðisaukaskattsvelta
  mars-apríl   maí-apríl  
  2015 2016 % 2014-2015 2015-2016 %
Alls 605.369 634.764 5% 3.615.033 3.886.746 8%
01/02 Landbúnaður og skógrækt¹ ... ... ... 45.515 48.700 7%
03/10.2 Fiskveiðar, fiskeldi og vinnsla sjávarafurða 73.729 65.181 -12% 379.328 379.476 0%
C Framleiðsla, án 10.2, fiskvinnslu 123.275 100.634 -18% 699.583 672.448 -4%
D/E Veitustarfsemi 28.081 27.046 -4% 165.519 166.093 0%
F/B Byggingarstarfsemi, mannvirkjagerð, námugröftur og vinnsla hráefna úr jörðu 26.411 35.702 35% 172.279 216.941 26%
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum 195.580 206.315 5% 1.166.627 1.236.711 6%
H Flutningar og geymsla² 53.722 64.453 20% 342.246 400.255 17%
I Rekstur gististaða og veitingarekstur 16.857 23.224 38% 118.253 145.169 23%
J Upplýsingar og fjarskipti 28.070 33.043 18% 169.868 185.334 9%
L Fasteignaviðskipti og fasteignaleiga 10.101 10.865 8% 60.640 69.411 14%
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi 21.661 25.956 20% 128.326 148.784 16%
N Önnur leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta² 12.066 22.265 85% 78.863 109.773 39%
Aðrir bálkar 13.820 18.013 30% 87.987 107.651 22%
¹Flestir bændur skila virðisaukaskatti hálfsárslega. Velta á tveggja mánaða tímabili gefur því ekki rétta mynd af þróun landbúnaðar.
²Í ársbyrjun 2016 tóku gildi bryetingar á lögum um virðisaukaskatt, m.a. varð hluti farþegaflutninga (bálkur H) og þjónusta ferðaskrifstofa (bálkur N) virðisaukaskattsskyldur.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.