FRÉTT FYRIRTÆKI 23. FEBRÚAR 2022

Meiri velta var í flestum atvinnugreinum árið 2021 en 2020 samkvæmt virðisaukaskattskýrslum. Árið 2020 var mikið um lokanir og takmarkanir vegna kórónuveirufaraldursins og því er athyglisvert að bera saman veltu 2021 og veltu 2019, þ.e. fyrir faraldurinn.

Sé velta á árinu 2021 borin saman við veltu 2019 var aukning í öllum framleiðslugreinum. Einnig jókst velta í heild- og smásölu að undanskilinni olíuverslun. Velta dróst hins vegar verulega saman í nokkrum greinum þjónustu, s.s. í rekstri ferðaskrifstofa og gististaða.

Ársmeðaltal gengisvísitölu hækkaði um 8,4% frá 2019 til 2021. Ársmeðaltal vísitölu neysluverðs hækkaði um 7,4% á sama tímabili.

Endurskoðun hagtalna
Tölur um veltu skv. virðisaukaskattskýrslum eru bráðabirgðatölur. Við birtingu fréttar 20. desember sl. var velta í virðisaukaskattskyldri starfsemi, að frátalinni lyfjaframleiðslu, talin vera 936,3 milljarðar króna í september-október 2021 sem var 22,95% hækkun frá sama tímabili árið 2020. Nú hafa nýrri tölur borist og velta á þessu tímabili er talin vera 937,4 milljarðar sem er 23,09% hækkun á milli ára. Fjallað er um endurskoðun birtra hagtalna í lýsigögnum. Einnig er birt töluleg samantekt á því hvernig nokkrir undirflokkar breytast við endurskoðun birtra hagtalna.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni
Einkennandi greinar ferðaþjónustu
Allar atvinnugreinar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.