FRÉTT FYRIRTÆKI 30. ÁGÚST 2016

Nýskráningar einkahlutafélaga í júlí 2016 voru 153. Síðustu 12 mánuði, frá ágúst 2015 til júlí 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 18% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.610 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.219 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu þar sem þeim fjölgar úr 166 í 236, eða um 42% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna fasteignaviðskipti þar sem nýskráningum fjölgaði úr 291 í 408 (40%) og flutninga og geymslu þar sem fjölgunin var úr 43 í 57 nýskráningar (33%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi, eða um 4% frá fyrra tímabili (úr 228 í 218).

Skráð gjaldþrot í júlí 2016 voru 43. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá ágúst 2015 til júlí 2016, hefur fjölgað um 19% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 863 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 724 á fyrra tímabili. Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, þar sem þeim fjölgaði úr 122 í 183 frá fyrra tímabili (50%). Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 88 í 77 (13%).

Nýskráningar og gjaldþrot
  Júlí   Ágúst–júlí  
  2016 2015 % 2015–2016 2014–2015 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 153 176 -13 2.610 2.219 18
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   9 8 13 97 95 2
C Framleiðsla  10 8 25 100 85 18
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   23 23 0 327 273 20
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   12 21 -43 267 273 -2
H Flutningar og geymsla   5 5 0 57 43 33
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   10 13 -23 180 147 22
J Upplýsingar og fjarskipti  13 17 -24 189 173 9
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   18 23 -22 384 316 22
L Fasteignaviðskipti   23 28 -18 408 291 40
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   12 14 -14 218 228 -4
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   13 8 63 236 166 42
Aðrar atvinnugreinar 5 8 -38 147 129 14
             
Gjaldþrot            
Alls 43 26 65 863 724 19
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   3 1 200 26 23 13
C Framleiðsla  1 0 - 44 43 2
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   6 7 -14 161 145 11
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   8 3 167 183 122 50
H Flutningar og geymsla   1 1 0 22 23 -4
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   4 3 33 57 54 6
J Upplýsingar og fjarskipti  3 1 200 52 37 41
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   6 3 100 66 52 27
L Fasteignaviðskipti   2 3 -33 77 88 -13
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   4 2 100 77 67 15
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   3 2 50 45 33 36
Aðrar atvinnugreinar 2 0 - 53 37 43

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.