FRÉTT FYRIRTÆKI 24. FEBRÚAR 2017

Nýskráningar einkahlutafélaga í janúar 2017 voru 242. Síðustu 12 mánuði, frá febrúar 2016 til janúar 2017, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 13% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.698 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.387 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 179 í 278 á síðustu 12 mánuðum (55%), og í flutningum og geymslu, þar sem fjölgunin var úr 44 í 68 nýskráningar (55%). Í framleiðslu fækkaði nýskráningum á tímabilinu úr 94 í 84 (11%).

Í janúar 2017 voru 70 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá febrúar 2016 til janúar 2017, hefur fjölgað um 84% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 1.037 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 564 á fyrra tímabili. Rétt er að nefna að skráning einhverra þeirra gjaldþrota sem hefðu e.t.v. átt að skrást á fyrra tímabilinu dróst yfir á það síðara vegna verkfalls SFR hjá Tollstjóra á síðustu mánuðum ársins 2015. Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað hlutfallslega mest í fjármála- og vátryggingastarfsemi, þar sem þeim fjölgaði úr 34 í 91 frá fyrra tímabili (168%). Gjaldþrotum fjölgaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum frá fyrra tímabili, en þeim fjölgaði hvað hægast í flutningum og geymslu, úr 16 í 22 (38%).

Nýskráningar og gjaldþrot
  Janúar   Febrúar–janúar  
  2016 2017 % 2015-2016 2016-2017 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 210 242 15 2.387 2.698 13
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   10 2 -80 94 84 -11
C Framleiðsla  5 11 120 84 110 31
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   27 40 48 298 359 20
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   20 20 0 271 274 1
H Flutningar og geymsla   2 10 400 44 68 55
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   5 7 40 162 163 1
J Upplýsingar og fjarskipti  15 15 0 171 195 14
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   34 33 -3 352 371 5
L Fasteignaviðskipti   36 44 22 368 422 15
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   22 22 0 224 235 5
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   19 25 32 179 278 55
Aðrar atvinnugreinar 15 13 -13 140 139 -1
             
Gjaldþrot            
Alls 60 70 17 564 1.037 84
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   1 2 100 21 30 43
C Framleiðsla  3 3 0 33 55 67
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   9 22 144 120 192 60
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   14 12 -14 100 201 101
H Flutningar og geymsla   2 2 0 16 22 38
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   4 5 25 39 60 54
J Upplýsingar og fjarskipti  5 1 -80 30 59 97
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   6 3 -50 34 91 168
L Fasteignaviðskipti   5 7 40 66 105 59
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   6 3 -50 45 95 111
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   3 6 100 29 61 110
Aðrar atvinnugreinar 2 4 100 31 66 113

Talnaefni:
  Fyrirtæki
  Gjaldþrot

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.