FRÉTT FYRIRTÆKI 26. FEBRÚAR 2016

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá febrúar 2015 til janúar 2016, hefur fjölgað um 15% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.387 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.069 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum þar sem þeim fjölgar úr 219 í 368, eða um 68% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð þar sem nýskráningum fjölgaði úr 228 í 298 (31%) og rekstur gististaða og veitingarekstur þar sem fjölgunin var úr 132 í 162 nýskráningar (23%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í upplýsingum og fjarskiptum, eða um 7% borið saman við fyrra tímabil (úr 184 nýskráningum í 171).

Gjaldþrotum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá febrúar 2015 til janúar 2016, hefur fækkað um 31% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 563 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 816 á fyrra tímabili. Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í flutningum og geymslu, úr 31 í 16 (48%). Einnig má nefna fækkun gjaldþrota í framleiðslu úr 59 í 33 (44%), auk þess að í fjármála- og vátryggingastarfsemi fækkaði gjaldþrotum úr 58 í 33, eða um 43%. Gjaldþrotum fækkaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum frá fyrri 12 mánuðum. Hlutfallslega fækkaði þeim hægast í  landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum, eða um 9% milli ára (úr 23 gjaldþrotum í 21).

Nýskráningar og gjaldþrot
  Janúar   Febrúar - Janúar  
  2016 2015 % 2015-2016 2014-2015 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 210 191 10 2.387 2.069 15
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   10 3 233 94 89 6
C Framleiðsla  5 12 -58 84 84 0
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   27 21 29 298 228 31
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   20 21 -5 271 284 -5
H Flutningar og geymsla   2 4 -50 44 43 2
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   5 12 -58 162 132 23
J Upplýsingar og fjarskipti  15 15 0 171 184 -7
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   34 39 -13 352 330 7
L Fasteignaviðskipti   36 20 80 368 219 68
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   22 21 5 224 196 14
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   19 16 19 179 148 21
Aðrar atvinnugreinar 15 7 114 140 132 6
             
Gjaldþrot            
Alls 60 84 -29 563 816 -31
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   1 1 0 21 23 -9
C Framleiðsla  3 9 -67 33 59 -44
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   9 10 -10 120 148 -19
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   14 20 -30 100 150 -33
H Flutningar og geymsla   2 4 -50 16 31 -48
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   4 6 -33 39 67 -42
J Upplýsingar og fjarskipti  5 3 67 30 36 -17
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   6 5 20 33 58 -43
L Fasteignaviðskipti   5 13 -62 66 85 -22
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   6 7 -14 45 74 -39
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   3 4 -25 29 36 -19
Aðrar atvinnugreinar 2 2 0 31 49 -37

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.