FRÉTT FYRIRTÆKI 03. FEBRÚAR 2017

Nýskráningar einkahlutafélaga í desember 2016 voru 200. Árið 2016 fjölgaði nýskráningum einkahlutafélaga um 13% frá fyrra ári. Alls voru 2.666 ný einkahlutafélög skráð á árinu, borið saman við 2.368 árið 2015. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 176 í 272, eða um 55% frá fyrra ári. Einnig má nefna að nýskráningum í flutningum og geymslu fjölgaði árið 2016 úr 46 í 60 (30%). Nýskráningum fækkaði í rekstri gististaða og veitingarekstri um 5% frá fyrra ári (úr 169 í 161).

Ef skoðuð er skipting á nýskráningum einkahlutafélaga og hlutafélaga milli landshluta árið 2016 sést að þeim fjölgaði hlutfallslega mest á Austurlandi, þar sem 71 félag var nýskráð árið 2016, borið saman við 52 nýskráningar árið 2015 (37%). Nýskráningum fjölgaði í öllum landshlutum frá 2015 til 2016 nema á Norðurlandi vestra, þar sem fjöldinn stóð í stað milli ára (32 nýskráningar hvort ár).

Í desember 2016 voru 29 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta. Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja árið 2016 fjölgaði um 75% frá fyrra ári. Alls voru 1.027 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á árinu, borið saman við 588 árið 2015. Í þessu samhengi má nefna að vegna verkfalls lögfræðinga sem stóð frá apríl til desember 2015 má vera að einhver hluti þeirra gjaldþrota sem skráð voru árið 2016 hafi í raun átt sér stað 2015, en erfitt er að leggja mat á hversu stór partur af aukningunni milli ára liggur í þeirri skýringu. Árið 2016 fjölgaði gjaldþrotum hlutfallslega mest í fjármála- og vátryggingastarfsemi, þar sem þeim fjölgaði úr 33 í 94 frá fyrra ári (185%). Einnig má nefna að milli áranna 2015 og 2016 fjölgaði gjaldþrotum í upplýsingum og fjarskiptum úr 28 í 63 (125%) og í sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi úr 46 í 98 (113%). Gjaldþrotum fjölgaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum frá fyrra ári, en þeim fjölgaði hvað hægast í flutningum og geymslu, úr 18 í 22 (22%).

Ef skipting gjaldþrota árið 2016 er skoðuð eftir landshlutum sést að gjaldþrotum fjölgaði allnokkuð milli áranna 2015 og 2016 á höfuðborgarsvæðinu (úr 426 í 877; 106%), Vesturlandi (úr 16 í 34; 113%) og Vestfjörðum (úr 5 í 13; 160%), á meðan þeim fækkaði á milli ára á Suðurnesjum (úr 49 í 27; 45%), Austurlandi (úr 11 í 8; 27%) og Suðurlandi (úr 63 í 47; 25%).

Nýskráningar og gjaldþrot
  Desember   Janúar–desember  
  2015 2016 % 2015 2016 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 222 200 -10 2.368 2.666 13
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   9 2 -78 87 92 6
C Framleiðsla  4 9 125 91 104 14
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   32 23 -28 292 346 18
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   13 16 23 272 274 1
H Flutningar og geymsla   4 3 -25 46 60 30
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   18 9 -50 169 161 -5
J Upplýsingar og fjarskipti  13 6 -54 171 195 14
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   45 46 2 357 372 4
L Fasteignaviðskipti   27 37 37 352 414 18
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   23 24 4 223 235 5
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   19 17 -11 176 272 55
Aðrar atvinnugreinar 15 8 -47 132 141 7
             
Gjaldþrot            
Alls 18 29 61 588 1.027 75
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   0 1 - 21 29 38
C Framleiðsla  1 0 -100 39 55 41
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   2 5 150 121 179 48
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   6 6 0 106 203 92
H Flutningar og geymsla   0 0 - 18 22 22
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   1 1 0 41 59 44
J Upplýsingar og fjarskipti  0 0 - 28 63 125
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   2 3 50 33 94 185
L Fasteignaviðskipti   2 3 50 74 103 39
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   3 4 33 46 98 113
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   0 4 - 30 58 93
Aðrar atvinnugreinar 1 2 100 31 64 106

Talnaefni:
  Fyrirtæki
  Gjaldþrot

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.