Nýskráningar einkahlutafélaga í apríl 2016 voru 227. Síðustu 12 mánuði, frá maí 2015 til apríl 2016, hefur nýskráningum einkahlutafélaga fjölgað um 16% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.507 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.166 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum þar sem þeim fjölgar úr 254 í 404, eða um 59% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna leigustarfsemi og ýmsa sérhæfða þjónustu þar sem nýskráningum fjölgaði úr 147 í 227 (54%) og rekstur gististaða og veitingarekstur þar sem fjölgunin var úr 144 í 173 nýskráningar (20%). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum, eða um 16% frá fyrra tímabili (úr 99 í 83).
Skráð gjaldþrot í apríl 2016 voru 123. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá maí 2015 til apríl 2016, hefur fækkað um 6% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 732 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 777 á fyrra tímabili. Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í fasteignaviðskiptum, úr 97 í 62 (36%), en einnig má nefna fækkun gjaldþrota í rekstri gististaða og veitingarekstri úr 65 í 45 (31%). Á síðasta 12 mánaða tímabili hefur gjaldþrotum fjölgað mest í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði úr 33 í 42 frá fyrra tímabili (27%), en einnig má nefna fjölgun gjaldþrota úr 52 í 59 í fjármála- og vátryggingastarfsemi (13%).
Nýskráningar og gjaldþrot | ||||||
Apríl | Maí - apríl | |||||
2016 | 2015 | % | 2015-2016 | 2014-2015 | % | |
Nýskráningar ehf. | ||||||
Alls | 227 | 185 | 23 | 2.507 | 2.166 | 16 |
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar | 7 | 13 | -46 | 83 | 99 | -16 |
C Framleiðsla | 6 | 10 | -40 | 89 | 86 | 3 |
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 27 | 20 | 35 | 300 | 257 | 17 |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 30 | 22 | 36 | 274 | 284 | -4 |
H Flutningar og geymsla | 7 | 3 | 133 | 53 | 46 | 15 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 14 | 13 | 8 | 173 | 144 | 20 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 17 | 17 | 0 | 180 | 182 | -1 |
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi | 21 | 16 | 31 | 349 | 318 | 10 |
L Fasteignaviðskipti | 43 | 33 | 30 | 404 | 254 | 59 |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 16 | 21 | -24 | 224 | 217 | 3 |
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 29 | 6 | 383 | 227 | 147 | 54 |
Aðrar atvinnugreinar | 10 | 11 | -9 | 151 | 132 | 14 |
Gjaldþrot | ||||||
Alls | 123 | 68 | 81 | 732 | 777 | -6 |
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar | 2 | 0 | - | 20 | 23 | -13 |
C Framleiðsla | 9 | 5 | 80 | 46 | 53 | -13 |
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð | 23 | 11 | 109 | 153 | 146 | 5 |
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum | 24 | 15 | 60 | 145 | 141 | 3 |
H Flutningar og geymsla | 4 | 3 | 33 | 19 | 22 | -14 |
I Rekstur gististaða og veitingarekstur | 6 | 6 | 0 | 45 | 65 | -31 |
J Upplýsingar og fjarskipti | 4 | 1 | 300 | 37 | 35 | 6 |
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi | 13 | 3 | 333 | 59 | 52 | 13 |
L Fasteignaviðskipti | 13 | 14 | -7 | 62 | 97 | -36 |
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi | 10 | 5 | 100 | 61 | 70 | -13 |
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta | 7 | 1 | 600 | 42 | 33 | 27 |
Aðrar atvinnugreinar | 8 | 4 | 100 | 43 | 40 | 8 |