FRÉTT FYRIRTÆKI 25. JÚLÍ 2017

Nýskráningar einkahlutafélaga á öðrum ársfjórðungi 2017 voru 689, þar af 189 í apríl, 258 í maí og 242 í júní. Nýskráningum fækkaði um 11% á öðrum ársfjórðungi 2017, borið saman við annan ársfjórðung 2016 þegar þær voru 771. Ef litið er á fjölda nýskráninga eftir helstu bálkum atvinnugreina voru flestar nýskráningar í fjármála- og vátryggingastarfsemi (111), byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (94) og fasteignaviðskiptum (94). Sé borið saman við annan ársfjórðung 2016 fjölgaði nýskráningum úr 52 í 64 í sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi (23%), en fækkaði í flestum öðrum atvinnugreinabálkum, t.d. úr 39 í 21 í landbúnaði, skógrækt og fiskveiðum (46%) og úr 57 í 36 í upplýsingum og fjarskiptum (37%). 2.643 ný einkahlutafélög voru skráð á síðustu 12 mánuðum, frá júlí 2016 til júní 2017, og fjölgaði lítillega frá fyrri 12 mánuðum, þegar nýskráningar voru 2.633.

Á öðrum ársfjórðungi 2017 voru 157 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta, þar af 69 í apríl, 20 í maí og 68 í júní. Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja á öðrum ársfjórðungi 2017 fækkaði um 55% frá öðrum ársfjórðungi 2016, en þá voru þær 352. Gjaldþrotum fækkaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum. Þar af voru 31 gjaldþrot í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og fækkaði þeim frá öðrum ársfjórðungi 2016 úr 64 (52% fækkun), og í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum voru 31 gjaldþrot og fækkaði þeim úr 66 frá öðrum ársfjórðungi fyrra árs (53% fækkun). Gjaldþrotabeiðnum fyrirtækja síðustu 12 mánuði, frá júlí 2016 til júní 2017, fækkaði um 16% í samanburði við 12 mánuði þar á undan, en alls voru 716 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 851 á fyrra tímabili.

Nýskráningar og gjaldþrot
  2. ársfjórðungur   Júlí–júní  
  2016 2017 % 2015-2016 2016-2017 %
Nýskráningar ehf.            
Alls 771 689 -11 2.633 2.643 0
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   39 21 -46 96 58 -40
C Framleiðsla  27 21 -22 98 107 9
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   106 94 -11 327 399 22
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   81 80 -1 276 275 0
H Flutningar og geymsla   19 18 -5 57 59 4
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   48 51 6 183 158 -14
J Upplýsingar og fjarskipti  57 36 -37 193 182 -6
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   112 111 -1 389 382 -2
L Fasteignaviðskipti   111 94 -15 413 414 0
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   52 64 23 220 232 5
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   85 62 -27 231 243 5
Aðrar atvinnugreinar 34 37 9 150 134 -11
             
Gjaldþrot            
Alls 352 157 -55 851 716 -16
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   10 8 -20 24 28 17
C Framleiðsla  14 1 -93 44 33 -25
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   64 31 -52 163 138 -15
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   66 31 -53 178 126 -29
H Flutningar og geymsla   12 5 -58 23 18 -22
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   20 11 -45 56 49 -13
J Upplýsingar og fjarskipti  29 9 -69 51 38 -25
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   24 15 -38 64 64 0
L Fasteignaviðskipti   37 18 -51 78 80 3
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   35 8 -77 75 54 -28
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   14 11 -21 44 46 5
Aðrar atvinnugreinar 27 9 -67 51 42 -18

Hagstofa Íslands birtir nú fréttatilkynningar um fjölda nýskráninga og gjaldþrota ársfjórðungslega. Veftöflur um nýskráningar og gjaldþrot eftir bálkum atvinnugreina eru uppfærðar mánaðarlega.

Talnaefni:

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.