Árið 2025 voru nýskráð 3.350 fyrirtæki í atvinnurekstri, þar af voru nýskráð 2.916 einkahlutafélög. Flestar nýskráningar voru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, eða 527, sem er þó fækkun um 2% frá fyrra ári. Í heild drógust nýskráningar fyrirtækja í atvinnurekstri saman um 1% ef miðað er við árið 2024.
Árið 2025 voru 965 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem er 13% aukning frá fyrra ári þegar 851 fyrirtæki urðu gjaldþrota. Af 965 fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta í fyrra voru 371 með virkni á fyrra ári, þ.e. höfðu rekstrartekjur eða greiddu laun árið 2024. Gjaldþrotum virkra fyrirtækja fjölgaði um 9% frá fyrra ári.
Hjá þeim virku fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta árið 2025 störfuðu að jafnaði 2.392 árið 2024. Borið saman við fyrra ár var 22% aukning á heildarfjölda launafólks sem gjaldþrotin höfðu áhrif á. Þessi fjölgun var aðalega vegna fjölda launafólks í einkennandi greinum ferðaþjónustu, eða 1.014, sem er 59% aukning frá fyrra ári. Litlu færri störfuðu í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð eða 847.
Samhliða þessari birtingu hefur verið uppfærð veftafla yfir heildarfjölda skráðra fyrirtækja og félaga eftir rekstrarformum og atvinnugreinum. Rétt er að árétta að fjöldi skráðra fyrirtækja og félaga er ekki sá sami og fjöldi virkra fyrirtækja.
Um gögnin
Tölur um nýskráningar og gjaldþrot eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálka og nokkra atvinnugreinaflokka sem Hagstofa Íslands hefur skilgreint. Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.