FRÉTT FYRIRTÆKI 19. OKTÓBER 2006


Hagstofan hefur tekið saman tölur yfir framkvæmdastjóra, stjórnarformenn og stjórnarmenn fyrirtækja eftir kyni árið 2005.  Frá árinu 1999 til ársins 2005 hefur hlutfall kvenna sem sitja í stjórnum fyrirtækja og gegna stjórnarformennsku haldist nánast óbreytt eða í kringum 22%.  Á sama tímabili hefur fyrirtækjum með konur sem framkvæmdastjóra fjölgað úr 15,4% árið 1999 í 18,2% árið 2005.  Flestar konur eru framkvæmdastjórar í fyrirtækjum sem eru með innan við 10 starfsmenn og starfa við verslun og þjónustu.

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.