FRÉTT FYRIRTÆKI 28. ÁGÚST 2014

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá ágúst 2013 til júlí 2014, hafa dregist saman um 22% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 845 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Flest gjaldþrot voru í heild- og smásöluverslun, viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, svo og í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð. Í hvorum flokki voru 156 gjaldþrot.

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá ágúst 2013 til júlí 2014, hefur fjölgað um 7% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 1.994 ný félög skráð á tímabilinu. Flestar nýskráningar voru í fjármála- og vátryggingarstarfsemi, eða 319 talsins.

Gjaldþrot og nýskráningar
  Júlí   Ágúst - Júlí  
  2014 2013 % 2013-2014 2012-2013 %
Gjaldþrot
Alls 50 49 2 845 1.079 -22
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   1 2 -50 25 35 -29
C Framleiðsla  4 1 300 65 60 8
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   11 11 0 156 226 -31
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   5 9 -44 156 200 -22
H Flutningar og geymsla   2 0 - 29 34 -15
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   4 3 33 64 75 -15
J Upplýsingar og fjarskipti  2 2 0 41 50 -18
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   4 3 33 60 101 -41
L Fasteignaviðskipti   6 12 -50 97 134 -28
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   5 4 25 62 71 -13
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   2 1 100 33 34 -3
Nýskráningar ehf og hf.
Alls 189 146 29 1.994 1.860 7
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   11 8 38 82 85 -4
C Framleiðsla  5 6 -17 76 109 -30
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   29 16 81 200 165 21
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   24 23 4 280 259 8
H Flutningar og geymsla   4 5 -20 48 43 12
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   8 6 33 107 137 -22
J Upplýsingar og fjarskipti  27 11 145 183 156 17
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   26 26 0 319 292 9
L Fasteignaviðskipti   16 16 0 244 231 6
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   19 8 138 173 146 18
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   10 10 0 154 129 19

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.