FRÉTT FYRIRTÆKI 04. FEBRÚAR 2022

Af 951 fyrirtæki í fyrirtækjaskrá Skattsins, sem tekið var til gjaldþrotaskipta á árinu 2021, voru 210 með virkni á fyrra ári, 44% færri en 2020 þegar þau voru 375. Þar af voru 61 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (44% fækkun), 34 í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum (42% fækkun), 38 í einkennandi greinum ferðaþjónustu (60% fækkun) og 77 í öðrum atvinnugreinum (31% fækkun).

Þegar tekin eru saman þau fyrirtæki sem lýst voru gjaldþrota árið 2021 var fjöldi launafólks hjá þeim um 1.254 að jafnaði árið áður. Þetta er um 60% samdráttur frá 2020 þegar launafólk gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári var að jafnaði 3.158. Mælt í fjölda launafólks á fyrra ári voru áhrif gjaldþrota árið 2021 minni en árið 2020 í öllum atvinnugreinaflokkum.

Samtals voru 23 fyrirtæki, sem skráð voru í fyrirtækjaskrá Skattsins, tekin til gjaldþrotaskipta í desember síðastliðnum. Af þeim voru 14 með virkni á síðasta ári, það er annað hvort með launafólk samkvæmt staðgreiðsluskrá eða veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, sem er 39% fækkun frá desember 2020.

Hjá fyrirtækjum sem tekin voru til gjaldþrotaskipta á fjórða ársfjórðungi 2021 (október-desember) var fjöldi launafólks að jafnaði um 165 á fyrra ári. Þetta er um 76% fækkun frá fjórða ársfjórðungi 2020 þegar launafólk gjaldþrota fyrirtækja á fyrra ári var að jafnaði um 677. Mælt í fjölda launafólks á fyrra ári voru áhrif gjaldþrota á fjórða ársfjórðungi 2021 minni en á sama ársfjórðungi árið áður í öllum atvinnugreinaflokkum.

Um gögnin
Hagstofa Íslands gefur út tölur um gjaldþrot skráðra fyrirtækja í hverjum mánuði og birtast þær að jafnaði innan 30 daga frá því að mánuði lýkur en þá hefur stærstur hluti gjaldþrotabeiðna verið skráður í fyrirtækjaskrá Skattsins í kjölfar þess að auglýsing um gjaldþrotabeiðni er birt í Lögbirtingablaðinu.

Tölur um gjaldþrot og fyrri virkni fyrirtækja eru teknar saman samkvæmt atvinnugreinaflokkunarkerfinu ÍSAT2008 fyrir atvinnugreinabálkana byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Einnig er tekin saman gjaldþrotatölfræði fyrir einkennandi greinar ferðaþjónustu samkvæmt skilgreiningu Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, að viðbættum flokkunum þjónustustarfsemi tengd flutningi með flugi (H52.23) og nuddstofur, sólbaðsstofur, gufuböð o.þ.h. (S96.04).

Tölur um gjaldþrot fyrir síðasta mánuð eru bráðabirgðatölur og eru birtar með fyrirvara um nýjar upplýsingar um gjaldþrotabeiðnir frá dómstólum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.