Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 6,1% í febrúar 2026 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 392.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær rúmlega 369.000 á sama tíma árið 2025. Fjölgunina mátti nær alfarið rekja til aukinna gistinátta af hálfu Kínverja og þá einkum á Suðurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um alls rúmlega 16.000 eða 17,9% á milli ára.
Í öðrum landshlutum var einnig aukning á fjölda gistinátta að undanskildum Suðurnesjum þar sem gistinóttum á hótelum fækkaði um 7,5%. Á Vesturlandi og Vestfjörðum var 13,3% aukning og 10,6% á Norðurlandi. Þá var 21,3% aukning á Austurlandi en á höfuðborgarsvæðinu jókst fjöldinn aðeins lítillega eða um 1,9% (tæplega 4.000 gistinætur). Alls fjölgaði gistinóttum um tæplega 23.000 á milli ára.
Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 352.000, eða 90% af gistinóttum hótela, og var það 6,7% aukning frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru rúmlega 39.000 sem var 0,7% meira en í febrúar árið 2025. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bretum eða tæpar 86 þúsund og fækkaði þeim um 3,2% á milli ára. Þá fækkaði einnig gistinóttum Bandaríkjamanna (63 þúsund) um 13,2% en eins og áður sagði fjölgaði gistinóttum Kínverja mikið eða úr 30 þúsund í 52 þúsund (73,7%).
Framboð hótelherbergja jókst um 5,0% á landinu í febrúar. Mest jókst framboð herbergja hlutfallslega á Austurlandi eða um 43,7%. Þá var einnig 16,5% aukning á Suðurlandi. Minni breytingar voru í öðrum landshlutum og fækkun á Suðurnesjum um 5,0%. Á Norðurlandi fjölgaði herbergjum um 1,4%, á höfuðborgarsvæðinu um 0,9% og um 0,6% á Vesturlandi og Vestfjörðum. Alls var 171 hótel starfandi í febrúar 2026 með 12.165 herbergi og var fjöldinn aðeins meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls voru starfandi 165 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 58 hótel með alls 5.605 herbergi og 53 á Suðurlandi með 3.202 herbergi.
Herbergjanýting jókst um 1,2 prósentustig á landinu í heild og var aukning í öllum landshlutum nema á Austurlandi þar sem nýtingin dróst saman um 4,2 prósentustig. Á Norðurlandi var aukningin mest eða 2,8 prósentustig. Þá var 2,3 prósentustiga aukning á Vesturlandi og Vestfjörðum. Loks var 1,5 prósentustiga aukning bæði á Suðurlandi og Suðurnesjum auk þess sem nýting hótelherbergja jókst um 1,1 prósentustig á höfuðborgarsvæðinu. Í febrúar var mesta nýtingin á höfuðborgarsvæðinu (76,8%) og því næst á Suðurlandi (66,4%).
Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í febrúar rúmlega 576.000. Þetta var 6,1% fjölgun miðað við sama tíma árið 2025 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum tæplega 543.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða um 435.000 (tæplega 392.000 á hótelum og 44.000 á gistiheimilum) en rúmlega 141.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).
Lýsigögn
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.
Tölur um gistinætur á öðrum gististöðum en hótelum og gistiheimilum eru bráðabirgðatölur fyrir árið 2025 og 2026. Gögn um gistiheimili eru áætluð fyrir árið 2026. Tölur um gistinætur hótela í febrúar 2026 eru bráðabirgðatölur.