Gistinóttum á hótelum fækkaði um 1,8% í apríl 2026 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands um ferðaþjónustu á Íslandi. Alls voru gistinæturnar tæplega 366.000 á landsvísu en til samanburðar voru þær rúmlega 372.000 á sama tíma árið 2025.
Fækkun var í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um 4,0%. Hlutfallslega var fækkunin mest á Norðurlandi, eða 8,9%, en einnig var 8,8% fækkun á Austurlandi. Þá fækkaði gistinóttum á Vesturlandi og Vestfjörðum um 6,8% og lítillega á Suðurnesjum um 1,2%. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum svo um 2,7% eða rúmlega 5.000. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins var fjöldi gistinátta á hótelum nær óbreyttur miðað við sömu mánuði árið 2025 þar sem aðeins 0,6% aukning var á milli ára.
Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 319.000, eða 87% af gistinóttum hótela, og var það 2,4% fækkun frá fyrra ári. Gistinætur Íslendinga á hótelum voru tæplega 47.000 sem var 2,4% meira en í apríl árið 2025. Flestar erlendar gistinætur tilheyrðu Bandaríkjamönnum eða tæpar 81 þúsund og fækkaði þeim um 6,6% á milli ára. Þá fækkaði gistinóttum Breta (41 þúsund) um 14,4% og Þjóðverja (26 þúsund) um 9,0%. Aftur á móti fjölgaði gistinóttum Kínverja (18 þúsund) um 31,6%.
Framboð hótelherbergja jókst um 5,4% á landinu í apríl. Mest jókst framboð herbergja hlutfallslega á Austurlandi (26,2%) og Suðurlandi (16,1%). Á höfuðborgarsvæðinu var aukning um 3,9% en í öðrum landshlutum fækkaði framboði hótelherbergja. Þannig dróst fjöldinn saman um 5,4% á Suðurnesjum, 2,5% á Norðurlandi og 1,3% á Vesturlandi og Vestfjörðum. Alls voru 177 hótel starfandi í apríl 2026 með 12.562 herbergi og var fjöldinn nokkuð meiri en á sama tíma árið 2025 þegar alls voru starfandi 170 hótel. Á höfuðborgarsvæðinu voru rekin 59 hótel með alls 5.771 herbergi og 54 á Suðurlandi með 3.196 herbergi.
Herbergjanýting dróst saman um 3,3 prósentustig á landinu í heild og var minnkun í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum þar sem nýtingin jókst um 3,6 prósentustig. Á Austurlandi dróst nýting herbergja mest saman eða um 13,9 prósentustig. Á Suðurlandi var samdrátturinn 6,1 prósentustig, á Vesturlandi og Vestfjörðum 3,5 prósentustig en á höfuðborgarsvæðinu dróst nýtingin saman um 2,3 prósentustig auk þess sem minnkun var á Norðurlandi um 2,1 prósentustig. Í apríl var mesta nýtingin á Suðurnesjum (65,7%) og því næst á höfuðborgarsvæðinu (59,7%).
Allir gististaðir
Þegar allir skráðir gististaðir (hótel, gistiheimili, tjaldsvæði, orlofshús, o.fl.) eru skoðaðir var áætlaður heildarfjöldi gistinátta í apríl tæplega 544.000. Þetta var 0,8% lækkun miðað við sama tíma árið 2025 en þá var heildarfjöldi gistinátta á öllum gististöðum tæplega 548.000. Meginþorri gistinátta var á hótelum og gistiheimilum eða um 414.000 (tæplega 366.000 á hótelum og tæplega 49.000 á gistiheimilum) en tæplega 130.000 á öðrum tegundum skráðra gististaða (tjaldsvæðum, orlofshúsum, o.s.frv.).
Um gögnin
Tölur um gistinætur fyrir skráða gististaði eru fengnar úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.
Gögn sem fást frá gististöðum geta innihaldið tölur um fjölda gistinátta af óþekktum þjóðernum og er þeim tölum dreift með hlutfallslegum hætti á þekkt þjóðerni hverju sinni.
Tölur um gistinætur á öðrum gististöðum en hótelum eru bráðabirgðatölur fyrir árin 2025 og 2026. Gögn um gistinætur fyrir hótel og gistiheimili samanlagt og gististaði alls eru áætluð fyrir árin 2025 og 2026. Tölur um gistinætur hótela í apríl 2026 eru bráðabirgðatölur.