FRÉTT FYRIRTÆKI 10. NÓVEMBER 2016

Á 12 mánaða tímabili, frá október 2015 til september 2016, voru að jafnaði 16.456 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 599 (3,8%) frá síðustu 12 mánuðum á undan. Frá október 2015 til september 2016 greiddu launagreiðendur að meðaltali um 177.600 einstaklingum laun sem er aukning um 7.600 (4,5%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr.

Launagreiðendur með færri en 10 launþega á sínum vegum voru tæplega 14 þúsund í september síðastliðnum. Til samanburðar voru launagreiðendur með 10 eða fleiri launþega ríflega 2.600.

Tafla 1: Fjöldi launagreiðenda og launþega í september 2016  
  Fjöldi launagreiðenda Hlutfall af heildarfjölda launagreiðenda Þúsundir launþega
Samtals¹ 16.917 100% 189,2
<5 launþegar 12.120 72% 19,6
5-9 launþegar 2.065 12% 13,4
10-49 launþegar 2.117 13% 41,9
50-100 launþegar 306 2% 21,0
>100 launþegar 309 2% 106,4

¹ Þar sem sumir launþegar vinna hjá fleiri en einum atvinnurekanda er heildarfjöldi launþega minni en summan af fjölda launþega í einstökum flokkum.

Skipt eftir atvinnugreinum hefur launþegum fjölgað mikið á milli ára hjá launagreiðendum í ferðaþjónustu og byggingariðnaði. Einnig hefur launþegum fjölgað hlutfallslega mikið hjá starfsmannaleigum, en margar starfsmannaleigur leigja starfsmenn til fyrirtækja í byggingariðnaði. Launþegum hefur hins vegar fækkað í greinum tengdum sjávarútvegi, fræðslustarfsemi og opinberri stjórnsýslu.

Í september voru 1.602 launagreiðendur og um 25.900 launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu og hafði þeim fjölgað um 3.800 eða um 17% samanborið við september 2015. Launþegum í byggingarstarfsemi og hjá starfsmannaleigum hefur á sama tíma fjölgað um 1.800 eða um 20%. Hafa verður í huga að í þessum tölum eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Tafla 2: Fjöldi launagreiðenda og launþega í nokkrum atvinnugreinum          
  Fjöldi launagreiðenda Fjöldi launþega (þúsundir)
    sept. 2016 sept. 2015 Breyting (%)
Allar atvinnugreinar   16.347 181,2 174,9 6,3 4%
Viðskiptahagkerfið (ÍSAT nr. 03-82, 95-96)¹ 12.751 125,7 118,2 7,5 6%
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) 549 9,2 9,8 -0,6 -6%
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) 1.008 17,4 17 0,4 2%
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) 2.369 10,4 9,2 1,2 13%
Starfsmannaleigur (ÍSAT nr. 782)  12 0,8 0,1 0,6 511%
Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 45-47) 2.252 26,4 25,3 1,1 4%
Fjármála- og vátryggingastarfsemi (ÍSAT nr. 64-66) 376 6,4 6,4 -0,1 -1%
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) 543 39,5 42,5 -2,9 -7%
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) 1.056 16,1 15,9 0,2 1%
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) 1.602 25,9 22,1 3,8 17%
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) 849 12,5 12,4 0,2 1%
Skapandi greinar (ÍSAT nr. 3212, 58-60, 6201-6202, 7021, 7111, 731, 741-743, 8552, 90, 9101-9102)¹ 1.486 9,2 9 0,1 1%

¹ Frá því að síðasta fréttatilkynning var gefin út 10. október hefur skilgreiningum á flokkunum „viðskiptahagkerfið“ og „skapandi greinar“ verið breytt. Því eru tölur um þessa flokka ekki sambærilegar.

 


Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið vanmat í nýjustu tölum þegar launagreiðendur skila ekki upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar verða jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í ágúst 2016 telst nú vera 16.917 og heildarfjöldi launþega 189.200. Fjöldi launþega jókst um 8.200 (5%) frá ágúst 2015 til ágúst 2016.

Í fréttatilkynningu í október 2016 töldust vera 16.578 launagreiðendur og 188.300 launþegar í ágúst 2016. Fjöldi launþega var þá talinn hafa aukist um 7.300 (4%) frá ágúst 2015 til ágúst 2016.

Aðrar hagtölur
Hagstofa Íslands gefur árlega út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja eftir atvinnugreinum sem byggjast á skattframtölum og gefa ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.