FRÉTT FYRIRTÆKI 15. JÚLÍ 2009

Hagstofa Íslands hefur gefið út nýtt hefti Hagtíðinda um ársreikninga fyrirtækja 2006-2007. Þar kemur meðal annars fram að rekstrarhagnaður 23.038 fyrirtækja sem voru í rekstri bæði árin 2006 og 2007 (paraður samanburður) nam 16,0% af tekjum árið 2007 en var 19,4% árið 2006. Hagnaður af reglulegri starfsemi þessara fyrirtækja var 13,7% af tekjum árið 2007 og 11,7% árið 2006.

Þegar litið er á afkomu allra fyrirtækja í gagnasafninu, 28.370 fyrirtækja árið 2007 og 31.047 fyrirtækja árið 2006, er hún hlutfallslega svipuð og afkoma þeirra sem voru í pöruðum samanburði. Á árinu 2007 nam rekstrarhagnaður þeirra 15,5% af tekjum en árið áður var hann 18,8%. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 12,1% af tekjum árið 2007 og 10,8% af tekjum árið 2006.

Í yfirlitinu eru fyrirtæki í öllum atvinnurekstri, að meðtöldum fyrirtækjarekstri hins opinbera, þ.m.t. fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga, sem rekin eru í hlutafélags- eða samlagsformi og orku-, veitu- og fjölmiðlafyrirtæki, en önnur starfsemi hins opinbera er undanskilin. Starfsemi lífeyrissjóða er einnig undanskilin.

Ársreikningar fyrirtækja 2006-2007 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.