FRÉTT FYRIRTÆKI 31. JÚLÍ 2006

Hagstofan hefur tekið saman yfirlit um afkomu atvinnurekstrar á árinu 2004 með samanburði við árið 2003. Yfirlitið nær til ársreikninga 27.653 fyrirtækja, þ.e. lögaðila og einstaklinga í atvinnurekstri, árið 2003 og 27.143 fyrirtækja, árið 2004. Í samantektinni eru 21.096 fyrirtæki þau sömu bæði árin.

Í yfirliti þessu eru fyrirtæki í öllum atvinnurekstri, að meðtöldum fyrirtækjarekstri hins opinbera, þ.m.t. fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga, sem rekin eru í hlutafélags- eða samlagsformi og orku-, veitu- og fjölmiðlafyrirtæki, en önnur starfsemi hins opinbera er undanskilin. Starfsemi lífeyrissjóða er einnig undanskilin.

Á árinu 2004 varð hagnaður af reglulegri starfsemi 21.096 fyrirtækja sem voru einnig í rekstri árið 2003 (paraður samanburður) 11,7% af tekjum en árið áður var hagnaður sömu  fyrirtækja 6,5% af tekjum. Á árinu 2004 varð hagnaður af reglulegri starfsemi allra fyrirtækja í safninu 27.143 að tölu, 11,2% af tekjum, en árið áður var hagnaður af reglulegri starfsemi 27.653 fyrirtækja 6,0% af tekjum.

Ársreikningar fyrirtækja 2003-2004 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.