FRÉTT FYRIRTÆKI 27. JÚNÍ 2013

Í maímánuði voru nýskráð 189 einkahlutafélög, flest í fjármála- og vátryggingastarfsemi. Til samanburðar voru nýskráð 151 einkahlutafélag í maí í fyrra. Fyrstu 5 mánuði þessa árs var fjöldi nýskráninga 853, en það er 15,7% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 737 fyrirtæki voru skráð.

Þá voru 105 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í maímánuði, flest í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu 5 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 459, en það er tæplega 12% fækkun frá sama tímabili í fyrra þegar 521 fyrirtæki var tekið til gjaldþrotaskipta.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.