FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 12. MARS 2015

Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 3 milljarða króna árið 2014 eða 0,2% af landsframleiðslu. Til samanburðar var afkoman neikvæð um 32 milljarða króna árið 2013 eða 1,7% af landsframleiðslu.

Tekjur hins opinbera námu um 903 milljörðum króna og hækkuðu um 13,3% milli ára. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældust þær 45,3% samanborið við 42,4% árið 2013. Útgjöld hins opinbera voru 906 milljarðar króna 2014 og jukust um 9,3% milli ára en hlutfall þeirra af landsframleiðslu fór úr 44,1% í 45,4%.

Hrein peningalega eign hins opinbera sem hlutfall af vergri landsframleiðslu hækkar þriðja árið í röð var. Í lok síðasta árs var hlutfallið -47,2% en lægst var það -53,4% árið 2012. Heildarskuldir hins opinbera námu 113,2% af landsframleiðslu í árslok 2014 en hæst stóð hlutfallið í 126,6% árið 2011.

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera árið 2014. Í því má finna talnalegt yfirlit um helstu þætti opinberra fjármála, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og almannatrygginga. Áherslan er fyrst og fremst á hið opinbera en samsvarandi upplýsingar um undirgeira þess er að finna á vefsíðu Hagstofunnar.

Fjármál hins opinbera 2014, bráðabirgðauppgjör - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Fjárhagur hins opinbera)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.