FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 11. MARS 2014

Tekjuafkoma hins opinbera reyndist neikvæð um 23 milljarða króna á 4. ársfjórðungi 2013 eða sem nemur 5% af áætlaðri landsframleiðslu ársfjórðungsins og 11,5% af tekjum hins opinbera. Þetta má bera saman við um 36 milljarða neikvæða afkomu á sama tíma árið 2012. Til að finna hagstæðari afkomu á þessum ársfjórðungi þarf að fara aftur til ársins 2008.

Fjármál hins opinbera á 4. ársfjórðungi 2013 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Fjárhagur hins opinbera eftir ársfjórðungum 2004-2013)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.