FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 29. SEPTEMBER 2008

Hagstofa Íslands hefur reiknað út meðalrekstrarkostnað á hvern nemanda í öllum grunnskólum sem reknir eru af sveitarfélögum, skv. 2. mgr. 56. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla og 6. gr. reglugerðar um viðurkenningu grunnskóla og lágmarksframlög úr sveitarsjóði til slíkra skóla nr. 320 frá 26. mars 2007.

Um útreikning þennan fer samkvæmt 2. mgr. 6. gr. ofangreindrar reglugerðar sem hér segir:

„Útreikningur Hagstofu  Íslands skv. 1. mgr. skal liggja fyrir í september ár hvert. Útreikningur skal byggður á ársreikningum sveitarfélaga fyrir liðið ár, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga til þess dags sem útreikningur er gerður.  Verðlagsbreytingar skulu taka mið af almennum launahækkunum starfsmanna grunnskóla og breytingum á vísitölu neysluverðs að teknu tilliti til vægis hvors þáttar fyrir sig í rekstrarkostnaði grunnskólanna.“

Meðalrekstrarkostnaður á hvern nemanda á grunnskólum árið 2007 reyndist vera 960.502 krónur og vegin meðalverðbreyting rekstrarkostnaðar frá árinu 2007 til september 2008 var metin um 11,7%.

Niðurstöður útreikningsins eru því þær að áætlaður rekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum, sem reknir eru af sveitarfélögum, sé 1.072.884 krónur í september 2008.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.