FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 30. MARS 2005

Hagstofan birtir nú samandregið yfirlit yfir fjármál ríkis og sveitarfélaga á 4. ársfjórðungi 2004 og samtölur fyrir allt árið. Yfirlit þetta er á rekstrargrunni og er birt í lok næsta ársfjórðungs eftir að viðkomandi fjórðungi lýkur. Yfirlit þetta er meðal annars unnið vegna þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem íslensk stjórnvöld hafa tekið á sig í tengslum við EES-samninginn, en það mun þó enn frekar koma innlendum stjórnvöldum að gagni við mat á hagþróun innan ársins. Þá nýtist þetta nýja efni Hagstofunni við gerð ársfjórðungslegra þjóðhagsreikninga.
     Efnið er tvískipt. Annars vegar er efni frá Fjársýslu ríkisins um tekjur og gjöld ríkissjóðs á 4. fjórðungi ársins og hins vegar er áætlað heildaryfirlit yfir tekjur og gjöld allra sveitarfélaga í landinu á sama tíma. Tölurnar frá sveitarfélögunum byggja á úrtaki 7 sveitarfélaga með 50% íbúafjöldans og hefur það úrtak verið fært upp til heildar. Enn sem komið er hefur ekki reynst unnt að birta mikla sundurliðun á efninu og takmarkast birtingin við rekstrartekjur, rekstrargjöld og tekjujöfnuð auk þess sem fjárfesting er sýnd sérstaklega. Áfram verður unnið að því í samvinnu við Fjársýsluna og sveitarfélögin að koma þessari skýrslusöfnun í fastan farveg.
     Fyrstu bráðabirgðatölur fyrir 4. ársfjórðung 2004 benda til að  heildartekjur ríkissjóðs hafi orðið rúmir 82 milljarðar króna á rekstrargrunni og tekjujöfnuður jákvæður um 9,1 milljarð króna. Tekjur sveitarfélaganna á sama tíma eru áætlaðar 35,4 milljarðar og tekjujöfnuður neikvæður um 4,2 milljarða. Tekjujöfnuður hins opinbera í heild er því talinn hafa orðið jákvæður um 4,9 milljarða króna eða 4,2% af tekjum þeirra. Sem hlutfall af landsframleiðslu ársins er afgangurinn áætlaður  0,6% hjá hinu opinbera í heild. Leiða má líkum að því að einhverjar leiðréttingar sem ættu að tilheyra fyrri fjórðungum ársins komi inn á síðasta fjórðungi ársins.

     Í þessum tölum hefur verið leitast við að skrá bæði tekjur og gjöld á rekstrargrunni, ekki á greiðslugrunni eins og mánaðaryfirlit ríkissjóðs sýna. Rekstrargrunnur felur í sér að skuldbindingar eru bókfærðar þegar til þeirra er stofnað, óháð því hvenær greiðslur fara fram. Eins og áður segir eru þetta bráðabirgðatölur, bæði hjá ríki og sveitarfélögum. Sérstaklega eru tölur um fjárfestingu sveitarfélaganna óvissu háðar.
     Á grundvelli þess efnis sem nú birtist um 4. ársfjórðung og fyrri talna um fyrstu þrjá  ársfjórðunga fæst mynd af fjárhag hins opinbera á árinu 2004 í heild.

     Samkvæmt þessu er nú talið að tekjujöfnuður hins opinbera hafi orðið neikvæður um 5,7 milljarða á árinu 2004 eða 0,7% af landsframleiðslu ársins. Verulegur halli varð á rekstri sveitarfélaganna en afgangur hjá ríkissjóði.

Talnaefni (sjá "Fjárhagur hins opinbera eftir ársfjórðungum 2004")

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.